145. löggjafarþing — 140. fundur,  25. ág. 2016.

starfsáætlun sumarþings.

[10:50]
Horfa

Óttarr Proppé (Bf):

Virðulegur forseti. Ég held ég verði að segja að þótt hlutir hafi ekki verið í lagi áður er það ekki góð ástæða til þess að hafa þá áfram í ólagi og minni á að síðasta kjörtímabil var um margt mjög sérstakt vegna þess að átt var við bráðamál dag eftir dag í kjölfar hrunsins. Það var kannski skiljanlegt að það væru ákveðin lausatök og óvissa í stjórn landsins á þeim tíma, en tímarnir hafa talsvert breyst. Lausatök og óvissa um störf þingsins núna er illskiljanleg og mjög vandræðaleg. Þær hugmyndir að hafa þingfundi langt fram að kosningum eru sérstaklega skrýtnar í ljósi þess að það eru ekki stór þjóðhagslega bráðnauðsynleg mál sem þarf að taka á svo vitað sé.

Ég verð að lýsa yfir ákveðnum vonbrigðum með þá stöðu að við séum (Forseti hringir.) í óvissu með störf þingsins á meðan afskaplega lítið (Forseti hringir.) er að gerast annað en mál ríkisstjórnarinnar sem (Forseti hringir.) manni finnst því miður, af fullri virðingu, óþægilega mikill kosningafnykur af.