hækkun ellilífeyris.
Virðulegi forseti. Ég ítreka þakkir mínar til hv. þingmanns fyrir að lýsa yfir stuðningi við mál sem hefur sannarlega verið unnið hér lengi, m.a. unnið af hv. þingmanni og fyrrverandi ráðherra, Guðbjarti heitnum Hannessyni, og mörgum sem þá komu að málinu, og síðar af hv. þm. Pétri heitnum Blöndal sem stýrði þeirri nefnd. Hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson tók síðan að sér að ljúka því í samstarfi margra flokka. Það hafa margir komið að þessu máli. Það hefur verið eitt af því sem ríkisstjórnin hefur verið að vinna að og ég tel mjög mikilvægt. Ég hef haft þá skoðun að það skipti mestu máli að þegar þingið er að störfum, eins og það er í dag, þá tökumst við á um mál og ljúkum þeim ef þau eru talin til hagsbóta fyrir land og þjóð. Þetta mál er eitt af þeim og við hljótum að reyna að gera hvað við getum til þess að ljúka því.