145. löggjafarþing — 140. fundur,  25. ág. 2016.

afgreiðsla mála á sumarþingi.

[11:00]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P):

Forseti. Ég ætla að halda áfram að ræða um áætlanir ríkisstjórnarinnar varðandi þau mál sem á að taka fyrir á þessu stutta sumarþingi sem mér heyrist á hæstv. forsætisráðherra að verði síðan alls ekkert mjög stutt, þvert ofan í starfsáætlun Alþingis. Mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort búið sé að afgreiða þessi mál hjá ríkisstjórninni, m.a. þrjú mál sem hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra hyggst leggja fram á þinginu, eða hvar þau standa eiginlega í ferlinu og hvenær standi til að þau komi inn í þingið nákvæmlega.

Síðan hefur hæstv. forsætisráðherra sjálfur sagst ætla að mæla fyrir málum um breytingu á stjórnskipan landsins, að hann hyggist leggja fram þrjár greinar í stjórnarskrá. Er búið að taka það fyrir á ríkisstjórnarfundi og er búið að samþykkja að þessi mál fari inn í þingið? Ef ekki, hvenær? Eru einhver önnur mál sem hafa verið tekin fyrir á ríkisstjórnarfundum eða eru á leiðinni á slíkan fund til samþykktar til að hægt sé að taka þau fyrir á Alþingi?

Nú virðist málum þannig háttað, hæstv. forsætisráðherra, með nokkur mál sem liggja fyrir þinginu að það stendur gríðarlega stór hnífur í kú. Þá erum við að tala um búvörusamninginn. Hann virðist vera fastur í nefnd og ekki bólar á honum til frekari umfjöllunar í þingsal.

Síðan langar mig að lokum að spyrja hvernig standi á því að ekki sé hægt að fá þingmenn meiri hlutans í þingsal til að greiða atkvæði um öll þessi mikilvægu mál ríkisstjórnarinnar sem þeir vilja ná í gegn.