starfsáætlun sumarþings.
Virðulegi forseti. Það kom á óvart að heyra hæstv. forsætisráðherra tala um að hér sæti þing jafnvel út september. Við erum með starfsáætlun sem er samþykkt af forsætisnefnd og forseta. Ég veit ekki til hvers við erum með starfsáætlun ef við ætlum síðan ekki að virða hana. Mér finnst athyglisvert að við erum voðalega stolt af nýju lögunum um opinber fjármál þar sem við leggjum áherslu á fyrirsjáanleika og aga og að plana hlutina fram í tímann, en síðan erum við á þinginu kannski stundum eins og apakettir, vitum ekki hvað snýr upp og hvað snýr niður og virðumst ekki geta planað nokkurn hlut. Það er ekki til of mikils mælst að ríkisstjórnin komi þeim málum sem eru mikilvægust í gegn á þeim tíma sem við höfum sem er fram í næstu viku. Síðan eru kosningar. Þá fara flokkarnir bara með þau mál sem ekki komast í gegn inn í kosningabaráttuna og leggja þau þar undir þjóðina og koma þeim þá í gegn í nóvember, verði þeir kosnir. Ég skil þetta ekki alveg, ég held að hæstv. forsætisráðherra hafi svona misst þetta út úr sér í hita leiksins. Það gerist stundum í þessum ræðustól, menn segja eitt og annað. (Forseti hringir.) En ég þakka hæstv. forseta fyrir að boða til þingflokksformannafundar á eftir. Þá getum við rætt þetta.