starfsáætlun sumarþings.
Virðulegi forseti. Hvernig svo sem þetta var á síðasta kjörtímabili eða hvernig svo sem þetta hefur verið áður þegar svona uppákomur verða, þá minna þær mann óneitanlega á það hvernig vinnubrögðin hafa oft verið hér í gegnum tíðina. Þá fyllast menn mjög skiljanlegum ótta við það þegar hæstv. forsætisráðherra kemur hingað og talar eins og hann talaði áðan, að í lokin þegar hlutirnir hafa verið ótrúlega rólegir, rólegri en mjög oft áður, þá skyndilega ætli menn að íhuga að breyta starfsáætlun og þá væntanlega í kjölfarið dagsetningu kosninga. Eitthvað sem hefur verið rætt í þaula eftir stærstu mótmæli Íslandssögunnar, ef ég skil rétt, hérna í vor. Þess vegna finnst mér algerlega eðlilegt að við tökum það hér upp þegar menn tala eins og hæstv. forsætisráðherra. Ég fagna því að þingflokksformenn ætla að funda á eftir en ég vil heldur ekki að gert sé lítið úr því að menn fari hér í fundarstjórn til að tala um það, því að sá liður er til að tala um nákvæmlega slík atriði.