uppboðsleið í stað veiðigjalda.
Forseti. Píratar telja mjög mikilvægt að útgerðin verði ekki rukkuð um óhóflega há gjöld fyrir að nýta sameiginlegar auðlindir Íslendinga því að um undirstöðuatvinnugrein er að ræða. Þess vegna er stefna flokksins skýr. Við viljum að aflaheimildir verði boðnar upp þannig að auðlindagjaldið ráðist á markaði en ekki að geðþótta stjórnmálamanna. Með því fyrirkomulagi er öruggt að í erfiðu árferði, þegar verð á afurðum er lágt eða afli dræmur og torsóttur, munu útvegsmenn ekki greiða meira fyrir aflaheimildir en atvinnugreinin getur risið undir. Á betri árum þegar útgerðin er betur aflögufær verður afgjaldið sem til þjóðarinnar rennur væntanlega hærra.
Ríkið gæti uppfyllt alla villtustu drauma hægri flokkanna. Lækkun skatta á almenning, lækkun skulda ríkissjóðs og minni ríkisafskipti af atvinnulífinu með því að bjóða einfaldlega upp aflaheimildir eins og eðlilegt er að gera með verðmæti í eigu þjóðarinnar. Enn fremur væri hægt að uppfylla alla villtustu drauma vinstri manna með sömu aðferð því uppboð aflaheimilda mundi fjármagna gjaldfrjálsa heilbrigðisþjónustu, jafnan aðgang að gæðamenntun í vel fjármögnuðum skólum, allt án aukinnar skattlagningar. Því leiga á verðmætum í eigu þjóðarinnar er ekki skattheimta.
Nú liggur fyrir að Færeyingar hafa gert tilraun með uppboð aflaheimilda og er skemmst frá því að segja að þeir uppskáru auðlindarentu til ríkissjóðs Færeyinga sem var um 2.400% hærra en Íslendingar bera úr býtum í auðlindagjöld. Það er beinlínis hlægilegt að þeir flokkar sem vilja telja sig frjálslynda og markaðssinnaða skuli tala gegn því að auðlindagjöld séu ákveðin á frjálsum markaði. Það er deginum ljósara að þeir flokkar sem tala fyrir geðþóttaákvörðunum um skiptingu auðlindarentunnar milli útgerðar og þjóðar hafa engan áhuga á því að afla ríkissjóði tekna til þess að hreinsa út sveppagróður á spítala landsmanna. Þeir flokkar kjósa heldur að afhenda flokksgæðingum afrakstur sameiginlegra verðmæta þjóðar sinnar svo að örfáar fjölskyldur geti notið aðhlynningar (Forseti hringir.) á hátæknieinkasjúkrahúsum erlendis án myglusveppa.