145. löggjafarþing — 141. fundur,  29. ág. 2016.

vegagerð í Gufudalssveit.

760. mál
[16:10]
Horfa

innanríkisráðherra (Ólöf Nordal) (S):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurn um þessa framkvæmd í Gufudalssveit. Vegagerðin hefur á undanförnum árum unnið að umhverfismati fyrir Vestfjarðaveg 60 um Reykhólahrepp sem er síðasti hluti vegarins um sunnanverða Vestfirði. Einn af þeim kostum sem hafa verið til skoðunar er veglína sem liggur um Teigsskóg. Vegagerðin óskaði eftir því við Skipulagsstofnun í lok ársins 2014 að sú ákvörðun yrði tekin til endurskoðunar þar eð hönnuð hefði verið ný veglína um þennan kafla með mun minni umhverfisáhrifum heldur en sú fyrri. Skipulagsstofnun féllst á að verða við beiðni um endurupptöku á fyrri úrskurði og heimilaði að leiðin um Teigsskóg verði tekin með í nýju umhverfismati Vestfjarðavegar um Reykhólahrepp ásamt fleiri valkostum.

Verkefnið Vestfjarðavegur um Gufudalssveit milli Bjarkarlundar og Skálaness hefur síðan verið í nýju umhverfismatsferli og er áætlað að því verki og ferli ljúki í haust eða í byrjun vetrar. Ekki er hægt að sækja um framkvæmdaleyfi til sveitarfélagsins út frá fyrri matsskýrslu. Nýtt matsferli hófst á síðasta ári og er það miðað við nýjar forsendur, ekki síst veglínu í gegnum kjarr og skóglendi sem oft hefur verið kennt við Teigsskóg. Fyrst þegar þetta liggur fyrir eru forsendur fyrir því að hægt verði að bjóða verkið út, hvort sem er um hluta leiðarinnar að ræða eða allt verkið. Ekki er unnt að áfangaskipta verkinu og fara með hluta þess af stað í útboð út frá eldra umhverfismati. Hins vegar verður hægt að skipta verkinu upp í meira en eitt útboð ef og þegar mati á umhverfisáhrifum er lokið og framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar liggur fyrir.

Hæstv. forseti. Ég vil segja mína skoðun. Ég held að afar brýnt sé að ljúka þessum framkvæmdum við þennan veg vestur á sunnanverða Vestfirði. Ég hygg að undirbúningur núna hafi verið með miklum ágætum og vonast til þess að gangi allt eftir munum við innan einhverrar tíðar sjá til lands í þessum mikilvægu samgöngubótum á Vestfjörðum.