145. löggjafarþing — 142. fundur,  30. ág. 2016.

búvörulög o.fl.

680. mál
[21:04]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta var nú kostuleg ræða. Best var nú þegar hv. þingmaður sagði að við ættum að treysta mönnum og styðja málið vegna þess að gert væri ráð fyrir endurskoðun á samningnum, en svo sagði hann líka að hver gæti haft sína skoðun á því hvort samningurinn væri til tíu ára eða þriggja. Ef samningurinn er til tíu ára, hv. þingmaður, hvaða tryggingu gefur þú okkur þá fyrir því að hægt sé að endurskoða hann? Þú verður að vera alveg klár á því, vinur. Er þetta þriggja ára samningur eða er þetta tíu ára samningur? Ef þetta er tíu ára samningur þarf ríkið að borga sig út úr þeim samningi eftir þrjú ár ef það ætlar að gera á honum breytingar, þannig að þá er ekki hægt að selja okkur hér með einhverjum loddaraskap endurskoðunarákvæði sem ekkert þýðir.

Það er mjög athyglisvert að hv. þingmaður reynir að gera okkur í Samfylkingunni upp þær skoðanir að við séum á móti stuðningi við landbúnað. Við viljum stuðning við landbúnað, en við berum öll ábyrgð á því að passa að hann sé eins lítið íþyngjandi hvað varðar samkeppni og frjálsan markað og kostur er. Hv. þingmaður þekkir nú til í sjávarútvegi, veit ég. Hann veit þess vegna að það getur bara verið gott að vinna í markaðsumhverfi og vinna á opnum mörkuðum. Ég held að íslenskur landbúnaður hefði gott af því líka.

Hv. þingmaður verður að vera algjörlega skýr á því: Verður hægt að gera breytingar á þessum samningi í kjölfar endurskoðunar eða er bara verið að bjóða upp á þykjustusamráð? Hver er nákvæmlega þýðingin á endurskoðunni eftir þrjú ár? Verður hægt að breyta samningnum eða eru menn bundnir af honum eins og hann stendur?