145. löggjafarþing — 142. fundur,  30. ág. 2016.

búvörulög o.fl.

680. mál
[21:48]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er fegin því að þingmaðurinn hefur skilið það sem ég sagði. Ég er ekki á móti því að styrkja bændur. Ég ætla ekki að segja nákvæmlega hvort það eigi að vera 12 milljarðar eða 13 milljarðar eða 11. Ég er ekki tilbúin til að segja það hér og nú. En það sem ég er að segja er að það er gífurlega mikið að bjóða Alþingi Íslendinga upp á að gera samning upp á 200 milljarða til tíu ára. Það er það sem ég er að segja. Og ég er líka að segja að við ættum að greiða þessa styrki öðruvísi. Við eigum að gera byggðaáætlun í landinu og greiða styrki til bænda. Það gæti verið í einhverjum tilfellum fyrir að rækta landið meira, kornrækt eða eitthvað. Ég er ekki með nákvæma lýsingu á því en þetta er það sem ég tel að stjórnvöld hefðu átt að leggjast yfir og skoða áður en þau komu með samning til tíu ára sem hv. formaður atvinnuveganefndar sagði fyrr í dag að væri umbyltingarsamningur. Það er engin bylting í þessum samningi. Þetta er gamla tuggan upp á nýtt og horfir ekki til neinnar framþróunar. Það er það sem ég er á móti, virðulegi forseti.