145. löggjafarþing — 142. fundur,  30. ág. 2016.

búvörulög o.fl.

680. mál
[23:02]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Hv. þingmaður verður að gera sér grein fyrir að hann er að semja við samningamann dauðans. Ef hv. þingmaður er að bjóða upp á það að frumvarpinu verði breytt og að það verði algjörlega tryggt að samningurinn verði einungis til þriggja ára, þá geri ég honum gagntilboð. Ef hann tekur líka inn sjónarmið okkar varðandi samkeppnislögin, þá skal ég tala við hann.