145. löggjafarþing — 142. fundur,  30. ág. 2016.

búvörulög o.fl.

680. mál
[23:34]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta atvinnuvn. (Kristján L. Möller) (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir skýr svör hvað varðar þá hugmynd sem sett er fram í texta í nefndarálitinu en ekki sem tillaga. Ef til vill geri ég hana sem tillögu fyrir 3. umr.

Hv. þingmaður, já, það er alveg rétt, hann hefur verið þekktur fyrir það hér í sölum Alþingis að fjalla um eftirlit með verði og skapa umræðu um það. Ég er sammála því. Það kemur m.a. fram í nefndaráliti mínu. Það var ein af ástæðunum fyrir því að ég setti fram hinar fjölmörgu spurningar til ráðuneytisins sem við höfum rætt í nefndinni og farið í gegnum þó svo ég í nefndarálitinu gagnrýni það að ég skuli ekki fá upphæðirnar í tollum sem koma inn fyrir hverja vöru. Í nútímatölvukerfi ríkisins á ekki að vera neitt vandamál að gera það. Það var einmitt hugsunin til að fá það fram hvað varan kostar til landsins, hver tollurinn er sem ríkið fær og hvert er svo endanlegt verð til neytenda til að bera það saman, annars vegar innflutta vöru og innlenda vöru. (Forseti hringir.) Það var meiningin með því. Þess vegna spyr ég hv. þingmann í lokaandsvari mínu: Er ekki hv. þingmaður sammála mér í því að mjög mikilvægt sé að draga fram þessar tölur, þessar (Forseti hringir.) upphæðir, og fá upp heildartekjur ríkissjóðs af álögðum tollum vegna innfluttra landbúnaðarvara?