búvörulög o.fl.
Frú forseti. Ég vil aðeins staldra við það sem hv. þingmaður og reyndar fleiri hafa rætt, þ.e. endurskoðunarákvæði og gildistíma samningsins. Ég held að það sé nú rétt að hafa í huga að það má ekki alveg leggja að jöfnu þessa sérstöku samningagerð við ýmsa aðra almenna samninga sem ríkið gerir og eru einkaréttarlegs eðlis við aðila af því tagi. Hér er um nokkuð sérstakt fyrirbæri að ræða vegna þess að þetta eru lögbundnir samningar. Í sérlögum er kveðið á um að ríkisvaldið skuli leita eftir slíkum samningum við bændur um grundvöll búvöruframleiðslunnar. Þetta eru því lögverndaðir eða lögskipaðir samningar í sérlögum, eins og má að orði komast. En að sjálfsögðu lúta þeir svo að öðru leyti venjum um það að að sjálfsögðu er ekki hægt að skuldbinda ríkið nema fá til þess heimild frá Alþingi. Fjárveitingavaldið liggur jú hér og ég veit ekki betur — nú skal játað að ég hef ekki flett upp á núverandi samningum, en alla vega í tveimur síðustu samningum sem ég kom að að gera, í annað skipti bæði sem landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra og fjármálaráðherra og þurfti nú ekki að skrifa undir nema einu sinni, og í hitt skiptið sem atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra og skrifaði undir á móti fjármálaráðherra, voru komnir inn og eiga núna alltaf að vera almennir fyrirvarar um samþykki Alþingis við fjárveitingar. Þeir eru eðli málsins samkvæmt í reynd árlegir, þ.e. sá fyrirvari er alltaf til vegna þess að valdið liggur hér og verður ekki framselt inn í framtíðina.
Eftir að hafa sagt það er alveg ljóst að þetta er samt löggerningur milli þessara aðila. Hann byggir á sérlögum og skapar góða trú milli samningsaðila. Það sem ég hefði viljað heyra hv. þingmann fara aðeins betur yfir er annars vegar hvar jafnvægið liggur milli þess að hér er 20 ára rammi settur upp og hins vegar um skýr endurskoðunarákvæði eftir þrjú ár. Kannski er það það sem menn ættu að beita meira sjónum sínum að, (Forseti hringir.) að greina hvar jafnvægið liggur í raun og veru (Forseti hringir.) milli þessara þátta.