145. löggjafarþing — 144. fundur,  1. sept. 2016.

mannabreyting í nefnd.

[10:31]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseta hefur borist bréf, dagsett 31. ágúst 2016, frá þingflokki Framsóknarflokksins um mannabreytingar í nefndum þingsins, samanber 16. gr. þingskapa. Óskað er eftir því að Ásmundur Einar Daðason taki sæti Frosta Sigurjónssonar sem varamaður á þingi Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu.

Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.