145. löggjafarþing — 144. fundur,  1. sept. 2016.

fjármálaáætlun og endurreisn heilbrigðiskerfisins.

[10:38]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Ég skal ítreka það sem ég sagði. Ég tel fulla þörf fyrir meiri fjármuni í heilbrigðismálin en áætlunin gerir ráð fyrir, fulla þörf fyrir það, og verð ekki í neinum vandræðum með að ráðstafa þeim fjármunum. En ég vil heldur ekki líta fram hjá því sem vel er gert. Það er óumdeilanlegt að töluverð aukning fjármuna er til heilbrigðismála í þessum áætlunum. Það er bara þannig. Það er kannski ekki hægt að ætlast til þess að hv. þingmaður skilji það að þannig liggur í því. Ég er búinn að fara í gegnum þetta með fjárlaganefndinni, leggja spilin á borðin þar, en þar er þverskallast við af hálfu hv. þingmanns að meðtaka þær upplýsingar með einhverjum hlutlægum hætti sem þar eru bornar á borð. Ég get ekki borið ábyrgð á því þó að Samfylkingin kjósi að taka þessa stöðu í þeim málaflokki. Hún skal og verður að bera ábyrgð á því sjálf.