lækkun afurðaverðs til bænda.
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég vissi náttúrlega að hann væri á móti ESB, það er augljóst, en ég skil ekki af hverju íslenskir bændur eiga ekki að fá að hafa tollfrjálsan og tollkvótalausan aðgang að mörkuðum ESB og njóta góðs af því. Ég held að það væri það langbesta sem gæti komið fyrir bændur. Ég veit líka að bændur hafa mikinn áhuga á því. Ég veit að ráðherrann veit líka að þeir hafa áhuga á því, því að þeir hafa verið að falast eftir því að komast inn á þessa markaði.
Það hefur einnig komið fram að á síðustu 30 árum hefur lambakjötsneysla á hvern mann á Íslandi minnkað um helming, úr 40 kílóum í 20. Ef fram fer sem horfir þá mun neyslan í lok samningstíma búvörusamnings sem nú liggur fyrir kannski vera komin niður í 15 kíló á mann, við ætlum samt að framleiða sama magn af kjöti. Það hlýtur að vera algjört lífsspursmál fyrir íslenskan landbúnað að finna nýja markaði. Þar tel ég ESB eða Evrópusambandið langstærsta og besta markaðinn. Við getum alveg deilt um það.
Er verið að skoða þetta í ráðuneytinu í ljósi þess að það eru framleiðsluhvetjandi búvörusamningar (Forseti hringir.) í gangi sem á að fara að samþykkja og við erum að fara að framleiða sama magn og við höfum alltaf gert en neyslan minnkar (Forseti hringir.) innan lands?