búvörulög o.fl.
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Gunnar Bragi Sveinsson) (F) (um atkvæðagreiðslu):
Virðulegi forseti. Við greiðum atkvæði um ný búvörulög. Við greiðum atkvæði um töluverðar breytingar í starfsumhverfi bænda og um það hvernig við ætlum að treysta hag neytenda til langs tíma, halda áfram að byggja upp traustan og öflugan landbúnað sem skilar af sér heilnæmum vörum til neytenda á sanngjörnu verði, vonum við. Það er ánægjulegt að sjá fyrir endann á því langa ferli sem þessir samningar hafa verið í. Ég tel að atvinnuveganefnd hafi gert jákvæðar breytingar á samningunum sem þar er um að ræða. Ég fagna því mjög að við sjáum fyrir endann á þessu á Alþingi og getum um leið horft til framtíðar.
Vissulega er ein umræða eftir um þetta mál í þinginu en ég tel ástæðu til að þakka fyrir það sem búið er að gera.