145. löggjafarþing — 144. fundur,  1. sept. 2016.

búvörulög o.fl.

680. mál
[11:56]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Margt hefði mátt betur fara við undirbúning og gerð þessa samnings. Vinnubrögðin voru allt of lokuð og þröng, auk þess sem menn settu sig í heimatilbúna tímaþröng með því að allt of stutt var eftir af gildandi samningum. Atvinnuveganefnd hefur sýnt jákvæða viðleitni til að laga þetta mál og við erum í sjálfu sér ekki ósátt við niðurstöðuna, ramma til tíu ára með fortakslausum endurskoðunarákvæðum eftir þrjú ár. Við munum styðja breytingartillögu meiri hluta atvinnuveganefndar, okkar eigin að sjálfsögðu og aðrar eftir atvikum en greiða atkvæði gegn frávísunartillögu enda væri ella skapað mikið uppnám.

Engu að síður er málið í heild þannig vaxið að við, a.m.k. sá sem hér stendur, höfum grundvallarefasemdir um þá vegferð sem farin yrði, sérstaklega ef ekki kæmu til breytingar eftir endurskoðun að þremur árum liðnum. Þá bætist við að aftan við þetta mál er annað og öllu verra, tollasamningurinn við ESB. Til samans mynda þessi mál starfsumhverfi landbúnaðarins næstu árin og því miður eru breytingarnar að allt of litlu leyti til góðs. Því er ekki um annað að ræða en að láta hæstv. ríkisstjórn (Forseti hringir.) og flokka hennar bera ábyrgð á afgreiðslu málsins í heild sinni.