145. löggjafarþing — 144. fundur,  1. sept. 2016.

búvörulög o.fl.

680. mál
[12:15]
Horfa

Kristján L. Möller (Sf):

Hæstv. forseti. Hér er breytingartillaga sem sá sem hér stendur flytur. Hún er einfaldlega um að í verðlagsnefnd búvara skuli fulltrúar afurðastöðvanna skiptast milli stóra aðilans, sem hingað til hefur haft báða fulltrúana, og fulltrúar minni framleiðenda fái hinn fulltrúann. Ég tel að betra sé að ganga beint í þetta og hafa það skýrt svoleiðis en mér sýnist að stjórnarmeirihlutinn ætli, eins og vant er, að fella þá tillögu sem kemur fram og að þessi stóri aðili sem hefur verið dæmdur fyrir samkeppnisbrot tilnefni áfram tvo fulltrúa þarna inn. Ég legg þetta til og legg til að þingmenn skoði það og samþykki að báðir aðilar skuli tilnefna þarna fulltrúa. Ég tel að það sé liður í að reyna að skapa meiri sátt um þessa atvinnugrein.