145. löggjafarþing — 144. fundur,  1. sept. 2016.

búvörulög o.fl.

680. mál
[12:26]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Í þessum tillögum kom til að mynda ekkert fram um að þeir legðu til að þessari undanþágu yrði aflétt. Þessar tillögur snúa fyrst og fremst að hagsmunum minni framleiðenda. Eins og hefur komið fram í máli mínu áður höfum við tekið það inn frá Samkeppnisstofnun nákvæmlega eins og það er lagt til. Þetta snýr að því að tryggja minni framleiðendum aðgang að nægu hráefni til að þeir geti vaxið og dafnað á þessum endurskoðunartíma. Það er gríðarlega mikilvægt. Það kom fram hjá fulltrúum minni framleiðenda að ef þessi breyting yrði ekki gerð mundi framleiðsla þeirra ekki geta vaxið og dafnað og þeir yrðu jafnvel að hætta sinni framleiðslu. Við teljum okkur vera að tryggja þetta eftir tillögum frá Samkeppniseftirlitinu nákvæmlega eins og lagt var þar til, að við tryggjum þennan þátt. En til viðbótar því leggjum við til að fulltrúi þeirra sé skipaður í verðlagsnefndina svo að þeir eigi sæti þar við borðið.