búvörulög o.fl.
Virðulegur forseti. Hér erum við með frá hv. þingmönnum Samfylkingarinnar popúlíska tillögu sem er alveg dæmigerð fyrir þennan flokk þegar kemur að mikilvægum málefnum, eins og málefnum okkar helstu atvinnuvega. Við höfum séð hvernig þau hafa talað í sjávarútvegsmálum fram að þessu, voru svo hér við stjórnvölinn og komust ekkert áfram með ófærar leiðir sem þau höfðu boðað. Þetta er algerlega innihaldslaust. Sumir hv. þingmenn flokksins sem sitja á þingi í dag tóku þátt í því að skerða greiðslur samkvæmt búvörusamningi til bænda árið 2008, (Gripið fram í.) voru í ríkisstjórn á þeim tíma þegar það var gert. Auðvitað liggur alveg ljóst fyrir að þetta er á borði Alþingis á hverju ári. En það er mikilvægt fyrir greinina að hún hafi einhverja framtíðarsýn. Það er alger tvískinnungur í þessum mönnum þegar þeir þykjast í öðru orðinu (Forseti hringir.) bera hag bænda og sveita landsins fyrir brjósti og leggja síðan fram tillögur og tala með þeim hætti sem við verðum vitni að. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)