145. löggjafarþing — 144. fundur,  1. sept. 2016.

búvörulög o.fl.

680. mál
[12:56]
Horfa

Óttarr Proppé (Bf):

Virðulegur forseti. Þessir samningar eru gerðir í samráði við örfáa. Þessir samningar munu stuðla að ofbeit. Þeir eru ekki umhverfisvænir. Þeir munu væntanlega lækka verð til bænda þegar fram í dregur. Þeir staðfesta undanþágu Mjólkursamsölunnar frá samkeppnislögum sem gilda fyrir alla aðra atvinnustarfsemi á landinu. Þetta eru vondir samningar. Tilhugsunin um að greiða atkvæði með því að þeir gildi í þrjú ár er mjög erfið, en í ljósi þess að meiri hluti þingheims hefur séð ástæðu til þess að hafna frávísunartillögu Bjartrar framtíðar um að aftur verði sest að samningaborði og samningarnir unnir almennilega er tilhugsunin um að bera ábyrgð á því að samningurinn gildi í þrjú ár skárri en að hann skuli vera meitlaður í stein í tíu ár. Þess vegna segi ég já.