145. löggjafarþing — 144. fundur,  1. sept. 2016.

stjórnarskipunarlög.

841. mál
[15:01]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Hæstv. forseti. Í upphafi vil ég geta þess að eins hv. þingmenn Valgerður Bjarnadóttir og Katrín Jakobsdóttir átti ég sæti í stjórnarskrárnefnd forsætisráðherra sem gekk frá þeim tillögutexta sem frumvarp forsætisráðherra hér byggir á. Fundir voru vissulega margir og hart tekist á um ýmis efni. Ég vil þó geta þess að ég tel að í öllum meginatriðum hafi samstarfið í nefndinni verið gott og jafnvel betra en í ýmsum slíkum nefndum sem ég hef komið nálægt á undanförnum árum. Ég tel líka, þannig að það sé sagt, að með þeim tilslökunum á alla enda og kanta sem birtast í tillögutextanum hafi okkur miðað töluvert mikið áleiðis með því að ná fram sameiginlegum skilningi á þeim atriðum sem þarna er um að ræða. Ef ég ber þetta saman við aðra slíku vinnu sem ég hef tekið þátt í hygg ég að þarna hafi fulltrúar ólíkra sjónarmiða í þessum efnum komist nær því að ná sameiginlegum skilningi en við höfum iðulega séð áður.

Hér hafa fyrri ræðumenn vikið nokkuð að forsögunni. Ætla ég örstutt að víkja að henni líka. Til þess að taka það fram í umræðunni hafa auðvitað komið fram getum við sagt tvö ólík meginsjónarmið í umræðum um stjórnarskrárbreytingar á undanförnum árum. Annars vegar hefur af hálfu sumra og sumra stjórnmálaafla verið uppi hávær krafa um róttækar breytingar á stjórnarskrá. Ég og minn flokkur höfum aldrei tekið undir það. Það hefur sem sagt verið ágreiningur um nálgunina. Sá ágreiningur birtist oft og iðulega á síðasta kjörtímabili og á sér eldri sögu, en um þetta var tekist töluvert hart á síðasta kjörtímabili. Auðvitað koma menn til nefndarstarfs á þessu kjörtímabili úr ólíkum herbúðum hvað þetta varðar. Sumir hafa talið að brýn þörf væri á róttækum stjórnarskrárbreytingum meðan aðrir hafa talið að lítil væri þörf á stjórnarskrárbreytingum þótt menn gætu verið opnir fyrir því að taka einstök atriði fyrir og setja ný atriði inn í stjórnarskrá og eftir atvikum að ræða breytingar á ákvæðum sem fyrir væru. Þannig er um að ræða ólík sjónarmið.

Þeir sem talað hafa fyrir róttækum stjórnarskrárbreytingum segja oft og iðulega, eins og síðasti ræðumaður, hv. þm. Valgerður Bjarnadóttir orðaði það, að gamaldags hefðbundin stjórnmál ráði ekki við þetta verkefni. Það er hennar viðhorf. Það form sem er á stjórnarskrárbreytingum samkvæmt núgildandi stjórnskipan hefur ekki auðveldað róttækar stjórnarskrárbreytingar, getum við sagt. Sumir orða það þannig: Alþingi ræður ekki við þetta verkefni. Þegar ég heyri menn halda því fram hugsa ég stundum: Meinar sá sem þetta segir ekki bara að Alþingi er ekki tilbúið til að gera þær breytingar sem ég vil fá fram? Er það ekki þannig? Er það ekki það sem er raunverulega átt við? Þegar menn segja: Alþingi ræður ekki við verkefnið, þá meina menn: Meiri hluti Alþingis er ekki tilbúinn til þess að klára málið eins og ég vil hafa það. Ég held að sé svolítið grunnt á þeirri hugsun hjá mörgum sem nálgast málið með þessum hætti.

Ég þarf ekki að segja hv. þingmönnum sem hér eru staddir og hafa fylgst með þessum umræðum að auðvitað hefur Alþingi breytt stjórnarskránni. Það hefur breytt stjórnarskránni sjö sinnum á lýðveldistímanum, töluvert oft frá setningu fyrstu stjórnarskrárinnar 1874, sjö sinnum á lýðveldistímanum. Og raunverulega hefur meiri hluta greina núgildandi stjórnarskrár verið breytt einhvern tímann á leiðinni. Þannig að auðvitað hefur Alþingi getað breytt stjórnarskránni. En það hefur hins vegar ekki gengið eftir sem sumir hafa gert kröfu um, að þær róttæku breytingar og breytingarhugmyndir sem menn hafa haft hafi farið í gegnum þingið.

Þá staldrar maður við atburðarásina á síðasta kjörtímabili sem segja má að hafi hafist þegar minnihlutastjórn Jóhönnu Sigurðardóttur tók við völdum í upphafi febrúar 2009, þá með stuðningi eða hlutleysi Framsóknarflokksins. Þar var lagt upp með að á þeim þremur mánuðum sem sú ríkisstjórn ætlaði að starfa fram að kosningum mundu menn gera töluvert róttækar breytingar á stjórnarskrá. Menn ætluðu bæði að gera nokkrar efnisbreytingar á veigamiklum atriðum og um leið að setja á fót stjórnlagaþing sem átti síðan að taka við heildarendurskoðun. Það rann auðvitað út í sandinn. Það var vanhugsuð áætlun að mínu mati og rann út í sandinn. Það var auðvitað ásamt öllu öðru sem menn voru að fást við á þessum tíma fullkomlega óraunhæft að ætla að keyra í gegn stjórnarskrárbreytingar með þeim hætti sem þarna var lagt upp með. En segja má að í því ferli sem þarna hófst hafi byrjað ákveðinn skotgrafahernaður þar sem viðhorf ólíkra fylkinga varð dálítið mikið allt eða ekkert. Menn vildu setja úrslitakosti, knýja fram niðurstöðu og það kom síðan margoft í ljós á kjörtímabilinu þar á eftir að menn sem þá voru í meiri hluta ætluðu að keyra fram breytingar eftir sínum hugmyndum nánast óháð því hvað minni hluti þingsins, sem þó var allverulegur, vildi í málinu.

Eins og aðrir ræðumenn hafa nefnt hér voru átökin hörð á síðasta kjörtímabili. Ég tók þátt í því og margir sem hér eru og má segja að víglínur þar hafi í fyrsta lagi mótast af þeim ólíku grundvallarhugmyndum sem ég nefndi í upphafi ræðu minnar, mismunandi viðhorfum til þess hvort þyrfti róttæka stjórnarskrárbreytingar eða ekki, einnig mismunandi afstöðu til þess hvort hrun bankakerfisins haustið 2008 gæfi með einhverjum hætti tilefni til stjórnarskrárbreytinga. Ég játa að ég sá aldrei hið röklega samhengi í því sambandi, enda var ekkert í stjórnarskránni sem kallaði fram bankahrunið og ekkert í stjórnarskrárbreytingum sem út af fyrir sig leiddi af þeirri atburðarás. Þvert á móti má segja að í þeim pólitíska ólgusjó sem tók við í kjölfar bankahrunsins hafi stjórnarskráin staðist. Á grundvelli núgildandi stjórnarskrár var hægt með þingræðislegum og lýðræðislegum hætti að skipta um ríkisstjórn í janúarlok 2009. Efnt var til kosninga í samræmi við ákvæði stjórnarskrár. Fjórum árum síðar verða svo aftur mikil pólitísk umskipti á grundvelli nýrrar stjórnarskrár, þannig að í þeim atriðum sem varða stjórnarskrána má segja að stjórnarskráin hafi staðið af sér hrunið.

Það að hér riði yfir mikið efnahagslegt áfall í kjölfar bankakreppu var auðvitað ekki tilefni til stjórnarskrárbreytinga enda hefur mig alltaf grunað að það hafi frekar verið þannig að þeir sem lengi höfðu verið áhugasamir um róttækar stjórnarskrárbreytingar vildu nota þetta tækifæri til þess að ná fram sínum sjónarmiðum vegna þess að það var pólitísk ólga, vegna þess að þjóðin var í uppnámi og áfalli. Ég verð að segja að það að menn vildu nýta sér aðstæður með þeim hætti gerði það að verkum að ég var enn þá harðari gegn breytingum á síðasta kjörtímabili þegar reynt var að keyra þetta í gegn með þessum hætti.

Ég ætla ekki að fara í smáatriðum út í þau skref sem voru stigin á síðasta kjörtímabili sem mörg hugnuðust mér ekki enda var verið að reyna að fara á svig við þá réttu leið sem stjórnskipanin kveður á um varðandi breytingar á stjórnarskránni með því að reyna að færa vald og verkefni frá þinginu og inn í einhverja aðra farvegi sem ekki voru stjórnskipulegar forsendur fyrir. Þá verður maður auðvitað að geta þess að það má segja að flest skref sem meiri hluti þingsins á þeim tíma, ríkisstjórnarflokkar Vinstri grænna og Samfylkingar, lengst af með stuðningi Hreyfingarinnar og einhverra annarra í einstökum tilvikum, hafi verið umdeild; auðvitað var verið að stíga mörg umdeild skref. Ég vil segja að frá mínum bæjardyrum séð var sú leið vörðuð mörgum mistökum. Í mínum huga var sú stórfellda tilraunastarfsemi sem þessir menn voru með í stjórnarskrármálum á síðasta kjörtímabili ekki vel lukkuð leið sem var öðrum til fyrirmyndar, heldur frekar víti til að varast.

Ég ætla ekki að gera lítið úr öllum þeim umræðum sem áttu sér stað um þessi mál. Í mörgum tilvikum var um að ræða frjóar umræður, áhugaverðar tillögur og annað þess háttar. En með þeirri aðferðafræði sem þarna var notuð voru menn að mínu mati að gera tilraun með breytingar á stjórnarskrá Íslands án þess að til þess bæri nokkra nauðsyn og án þess að skrefin væru vandlega íhuguð og vel útfærð. Upplifun mín af þessu var að þarna væri um að ræða röð mistaka og ferli sem raunverulega endaði úti í skurði í lok þess kjörtímabils.

Þegar nýr þingmeirihluti var kominn hér í kjölfar kosninga 2013 og ný ríkisstjórn tók við völdum var meðal þeirra verkefna sem menn ætluðu að setja sér að taka þátt í áframhaldandi vinnu við breytingar á stjórnarskrá. Í kjölfar þess var þessi nefnd sett upp. Útgangspunktar í því starfi voru nokkrir, m.a. sá að eðlilegt væri og skynsamlegt að áfangaskipta verki til þess að lenda ekki í sömu ógöngum og menn gera iðulega þegar þeir færast of mikið í fang, reyna að borða melónu í einum munnbita ef svo má segja. Ég minni á að tillögur stjórnlagaráðs sem vísað var til hér fólu í sér breytingar á svo til öllum 80 ákvæðum núverandi stjórnarskrár og til viðbótar 35 ný ákvæði, sem maður mundi segja að væri ansi stór munnbiti að kyngja jafnvel þótt sáttin um tillögurnar hefði verið meiri en raun bar vitni.

Þegar menn tala um að áfangaskipta felur það líka í sér ákveðna vísbendingu um að menn vilji forgangsraða, og það gerðum við í upphafi nefndarstarfsins. Eins og fram hefur komið í máli manna hér voru fjögur ákvæði tekin sérstaklega til meðferðar. Það var getum sagt að vel athuguðu máli vegna þess að þar var um að ræða ákvæði sem verið höfðu mikið til umræðu á undanförnum árum, ekki bara á tímabilinu 2009–2013 heldur sum hver raunar miklu lengur. Menn voru auðvitað að reyna að lesa svolítið í áherslur flokka og menn voru að reyna að lesa í opinberar umræður. Niðurstaðan var sem sagt sú að menn tóku til meðferðar þessi fjögur viðfangsefni. En það er alveg rétt sem Katrín Jakobsdóttir nefndi áðan að við upphaf nefndarstarfsins sáu menn fyrir sér að síðan yrði framhald á og önnur ákvæði yrðu tekin til umræðu þegar lengra liði á starfið.

Það var líka útgangspunktur, ekki bara að áfangaskipta og forgangsskipta, heldur voru flestir þeirrar skoðunar að æskilegt væri að ná niðurstöðu sem flestir gætu fellt sig við. Hugmyndin var sú að reyna að ná málamiðlun, ekki endilega að knýja fram lausnina sem ég vildi helst eða hv. þm. Katrín Jakobsdóttir eða hv. þm. Valgerður Bjarnadóttir, heldur að reyna að leita að einhvers konar sameiginlegum flötum, finna sameiginlega fleti til þess að vinna út frá.

Eins og ég sagði í upphafi máls míns tel ég að við höfum nálgast ansi mikið í þeim efnum og meira en ég hef séð í vinnu af þessu tagi sem ég hef tekið þátt í. Með því ætla ég ekki að draga úr því að í sambandi við öll ákvæðin sem þarna eru undir komu fram mjög ólík sjónarmið, sérstaklega í upphafi. En með því að halda dálítið marga fundi og ræða málin fram og til baka færðumst við kannski nær sameiginlegri niðurstöðu en ég hefði trúað í upphafi. Það kostaði það að allir urðu að slá af sínum kröfum, gefa eftir og reyna að ná sameiginlegum skilningi. Ég held að það hafi tekist í flestum tilvikum.

Ég nefndi að menn hefðu verið að reyna að tala út frá því að ná fram tillögum sem víðtækust væri sátt um, og það var á þeim forsendum sem nefndin ýtti til hliðar frekar seint í ferlinu tillögu um framsal ríkisvalds, enda þótti sumum innan nefndarinnar ljóst að það ákvæði gæti kallað á meiri og skarpari ágreining en önnur sem þarna var að finna og það gæti leitt til þess að það ákvæði eitt og sér yrði til þess að stoppa ferlið. Það vildu menn ekki þannig að ákveðið var að halda áfram með þau þrjú sem menn töldu að mögulegt væri að ná meiri sátt um.

Það gerðist síðan, ekki síst eftir að nefndin kynnti þær tillögur sem núna liggja á borðinu í febrúar á þessu ári, að í ákveðnum stjórnmálahreyfingum kom upp á yfirborðið mjög hörð andstaða við þá leið sem þarna var farin. Við veittum því athygli sem unnum að þessum málum að það var beinlínis fellt í atkvæðagreiðslu Pírata að málið fengi þinglega meðferð, eins og það var kallað. Það voru greinilega skiptar skoðanir í þeim hópi, en niðurstöður þeirrar atkvæðagreiðslu mátti skilja sem svo að flokksmenn Pírata eða þátttakendur í þeirri atkvæðagreiðslu legðust gegn því að þingmenn flokksins greiddu fyrir því að málið fengi þinglega meðferð.

Innan Samfylkingarinnar komu líka fram hörð andmæli við þessum tillögum og þeirri nálgun sem þar var að finna. Ef ég man rétt var í upphafi marsmánaðar efnt til flokksstjórnarfundar þar sem þessi mál voru til umræðu. Miðað við þær fréttir sem maður hafði af fundinum var ekki um að ræða formlegar samþykktir eða ályktanir um það, en það virtist standa upp úr flestum ræðumönnum hörð andstaða við að Samfylkingin tæki þátt í að fara þessa leið.

Þegar það liggur fyrir kemur sú hugsun upp hjá öðrum flokkum: Ef ekki eru allir með, þarf ég þá ekki að undirstrika mína sérstöðu með einhverjum hætti? Auðvitað má segja að svoleiðis hugsanir hljóti að ágerast þegar gefnar eru yfirlýsingar um að kosningum verði hugsanlega flýtt, eins og gerðist í vor þegar menn sáu fyrir sér að kjörtímabilið mundi styttast um sex, átta mánuði og stjórnmálalífið væri í raun og veru allt að gíra sig inn á kosningaundirbúning og þau átök sem því fylgja. Mér hefur þótt það hafa komið á daginn á þeim tíma sem liðinn er frá vori og nú fram á haustið.

Mér virðist að enn þá séu mjög ríkjandi sjónarmið hjá mörgum í pólitíkinni að gagnvart stjórnarskrárbreytingum að gildi ekkert annað gildi en viðhorfið allt eða ekkert. Mér finnst ég sjá það sterklega í málflutningi sumra frambjóðenda, stjórnarandstöðuflokkanna. Ég hef nefnt Pírata og Samfylkingu, mér finnst það koma sterkast úr þeim áttum, en það heyrist auðvitað hjá fleirum, að ekkert annað komi til greina en að taka pakkann eins og hann kom frá stjórnlagaráðinu svonefnda á sínum tíma og fara með hann í gegnum þingið. Allt annað sé óviðunandi málamiðlanir.

Um það vil ég segja að þegar menn nálgast hlutina með þeim hætti er verið að færa málið aftur inn í farveg stórátaka og skotgrafarhernaðar sem það var í á síðasta kjörtímabili. (Gripið fram í.) Það er kannski dæmigert viðhorf í þessu. Það eru umkenningar, ásakanir og úrslitakostir sem ég tel að séu ekki líklegar til þess að skila nokkrum nokkru áleiðis í þessum efnum.

Ég held og trúi því enn þá að unnt sé að ná samstöðu, alla vega allvíðtækri samstöðu um ákveðnar breytingar á stjórnarskrá Íslands. Mörgum mun finnast að þær breytingar séu ekki nægilegar róttækar og munu gagnrýna þær á þeim forsendum. Ég er þeirrar skoðunar að breytingar á stjórnarskrá eigi í sjálfu sér ekki að vera róttækar. Ég held að breytingar á stjórnarskrá eigi einmitt að vera varfærnar. Ég held að það eigi ekki að vera þannig að stjórnarskrá sé breytt með það afgerandi hætti og hugsanlega í andstöðu við stóran minni hluta að ef nýr meiri hluti tekur við á þingi eða meðal þjóðarinnar, telji menn sig knúna til þess að fara strax í að breyta stjórnarskránni aftur. Ég held að menn eigi frekar að reyna að standa saman að stjórnarskrárbreytingum í áföngum, í sátt, með varfærni, með það fyrir augum að þær stjórnarskrárbreytingar sem samþykktar eru séu ekki einnota, séu ekki svo umdeildar að þær verði reknar til baka um leið og pólitískir vindar í þjóðfélaginu hafa breyst. Ég held að sú nálgun sé fyrir okkur öll miklu uppbyggilegri og árangursríkari heldur en viðhorfið allt eða ekkert.