145. löggjafarþing — 144. fundur,  1. sept. 2016.

stjórnarskipunarlög.

841. mál
[15:25]
Horfa

Óttarr Proppé (Bf):

Virðulegur forseti. Það er að koma að lokum kjörtímabilsins og hér eru komnar fram tillögur að þremur breytingum að stjórnarskránni. Björt framtíð hefur stutt breytingar á stjórnarskránni. Á síðasta ársfundi Bjartrar framtíðar samþykktum við svohljóðandi ályktun:

„Ársfundur Bjartrar framtíðar leggur þunga áherslu á að breytingar verði gerðar á stjórnarskrá Íslands í samræmi við vilja þjóðarinnar, eins og hann birtist í þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrárbreytingar haustið 2012.“

Það er nefnilega svo að eftir dæmalausa stöðu í íslensku þjóðlífi 2008, 2009 var þung alda meðal almennings um að endurskoða stjórnarskrána. Sú alda skilaði sér í pólitíkina sem varð til þess að stjórnlagaráð var sett á fót, unnin stórmerkileg vinna, byrjaði á þjóðfundi þar sem almenningur eða fulltrúar almennings fengu að hafa bein áhrif á ferlið. Það er að mörgu leyti þyngra en tárum taki hvernig það ferli einhvern veginn steytti á skeri undir lok síðasta kjörtímabils. Í upphafi þessa kjörtímabils var tekin ákvörðun um að halda áfram með því að skipa stjórnarskrárnefnd frá þinginu, en í raun og veru að halda þessari vinnu áfram í mýflugumynd miðað við þá gagngeru endurskoðun sem hafði farið fram hjá stjórnlagaráði og hafði hlotið yfirburðafylgi í þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem spurt var hvort við vildum að tillögur stjórnlagaráðs yrðu hafðar að grundvelli stjórnlagabreytinga.

Ég ætla ekki að eyða miklum tíma í að rifja upp þá sorgarsögu. Aðrir þingmenn hafa gert það ágætlega hér á undan mér og voru líka á þingi á þeim tíma. En við erum alla vega komin hingað undir lok kjörtímabilsins og hér eru þó komnar fram tillögur að þremur breytingum á stjórnarskrá Íslands sem hafa verið samþykktar í stjórnarskrárnefnd þingsins og var skilað til forsætisráðherra. Þrátt fyrir að þetta sé kannski rýr uppskera miðað við það sem tillögur stjórnlagaráðs gerðu ráð fyrir verður að viðurkennast að þetta er skref fram á við. Það þykir mér jákvætt og við í Bjartri framtíð styðjum að tekin séu skref áfram en að við séum ekki föst í frosti, því pólitíska frosti að stjórnarskrárbreytingar séu orðnar eiginlega ómögulegar í því formi að þingið og tvö þing sitt hvorum megin við kosningar þurfi að samþykkja. Það að hér séu komnar tillögur um ákvæði um náttúruna, tillögur um auðlindaákvæði í stjórnarskrána og loksins tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslur, er auðvitað stórt skref fram á við. Það er jákvætt.

Engin af þessum tillögum er draumatillaga Bjartrar framtíðar, en við tókum þá afstöðu strax eftir kosningarnar 2013, þrátt fyrir að okkur þætti það vonbrigði hversu mikið ætti að para vinnuna niður og nefndin ætti bara að einbeita sér að fjórum ákveðnum ákvæðum, að við mundum styðja við ferlið og ekki láta okkar eftir liggja í því að sú vinna yrði góð og hún mundi ganga sem best. Því miður eins og hv. 3. þm. Reykv. n., Katrín Jakobsdóttir, rakti ágætlega í sinni ræðu og aðrir þingmenn hafa farið yfir þá urðu ýmis vandræði til þess að störf nefndarinnar gengu mjög hægt, sérstaklega framan af, og það tók heil þrjú ár að ná bara þremur ákvæðum fram. Undir lokin var samþykkt að skilja eftir fjórða ákvæðið, um heimild til afsals valdaheimilda sem er mjög mikilvægt fyrir Ísland í alþjóðasamstarfi og alþjóðlegu samhengi, og skila þeim þremur greinum sem náðist samstaða um, en þó með bókunum sem fulltrúi Bjartrar framtíðar stóð að. Við höldum því til haga að þær bókanir fólu ekki síst í sér gagnrýni á að ekki hefði verið tekið tillit til umsagna og sú afstaða stendur auðvitað.

Það er mér mjög sterkt í huga að fyrir örfáum mánuðum stóð forseti Íslands hér og var settur í embætti. Í innsetningarræðu sinni vék hann sérstaklega að stjórnarskránni, endurskoðun stjórnarskrárinnar, og því sem virtist vera vandkvæði eða getuleysi stjórnmálanna til að klára það verkefni. Ég verð að taka undir með forseta Íslands að það er eiginlega óþolandi að stjórnmálin skuli ekki valda þessu verkefni. Hér eru komin þrjú ný ákvæði sem hefur skort á í stjórnarskránni sem stjórnmálaflokkarnir hafa núna komið sér saman um eftir allt sem á undan er gengið, eftir stjórnlagaráð, eftir þau miklu læti sem voru á þingi undir lok síðasta kjörtímabils. Þessi ákvæði sem eru hér lögð til ný í stjórnarskrána hafa ekki komið fram í gegnum stjórnmálin, í gegnum Alþingi fyrr en núna. Það lýsir vissulega mikilli tregðu stjórnmálanna til þess að endurskoða stjórnarskrána á eðlilegan máta. Ég er ekki að fara fram á að hún sé sett á hvolf eða að henni sé gjörbreytt. Það gerist almennt ekki nema eftir byltingar eða stórkostlegar breytingar í löndum sem eru kannski að fara úr einveldi, einræði eða ógnarstjórnum yfir í lýðræði eða eitthvað í þeim dúr.

Sjálfsagðar breytingar og endurskoðun á stjórnarskrá, eins og endurspeglast að mörgu leyti í svo ljómandi góðum tillögum stjórnlagaráðs sem hlutu líka fylgi tveggja þriðju þeirra sem tóku þátt í þjóðaratkvæðagreiðslunni 2012, eru ekki róttækar eða óhugsandi. Þvert á móti þá eru þær vel hugsanlegar. Það er mikið kallað eftir þeim. Og það að stjórnmálin orki ekki að koma þeirri vinnu áfram er ámælisvert fyrir stjórnmálin. Ég er nú sá bjartsýnismaður að ég segi: Batnandi mönnum er best að lifa. Ég hef enn þá trú á að Alþingi sem samanstendur af fulltrúum almennings geti hysjað upp um sig brækurnar í vinnubrögðum og valdið þessu verkefni. Ég vil ekki taka það úr höndunum á Alþingi bara vegna þess að Alþingi sé eitthvað ömurlegt eða ekki starfi sínu vaxið. Ég held að við getum vaxið upp í þessi störf. En það er augljóst að við þurfum að gera betur og aðkoma almennings með þjóðaratkvæðagreiðslum er lykilatriði þarna.

Við búum við það að í stjórnarskrá Íslands sem vissulega er um margt ágætt plagg og hefur reynst okkur ágætlega í gegnum áratugina, er enginn möguleiki á þjóðaratkvæðagreiðslum um ákvarðanir Alþingis nema þegar forseti Íslands synjar lögum um staðfestingu. Það hefur sýnt sig að það ákvæði er ákveðinn öryggisventill eins og maður segir, en það setur það vald algjörlega í hendurnar á einum manni og hleypir almenningi ekki að. Hér er komin fram tillaga, þó svo að menn séu ósammála um hvað þröskuldarnir skuli vera háir í henni, um að gera almenningi kleift að krefjast, fara fram á og knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu um mál. Það eitt er risastórt skref fram á við. Það að slík heimild verði í stjórnarskrá Íslands, að slíkt fordæmi verði í stjórnarskrá Íslands, er mjög mikils virði. Síðan segi ég að þegar við fáum inn ákvæði sem við höfum ekki séð áður og ef það reynist ekki nógu gott, ef það reynist ómögulegt vegna hárra þröskulda, ef í það vantar möguleika almennings, sem ég vil reyndar meina að vanti, á að knýja á að setja mál á dagskrá, ef það kemur í ljós að gallar eru á því, þá ætti okkur að vera í lófa lagið að lagfæra það og færa til betri vegar. Eitthvað úr engu hlýtur að vera jákvætt skref.

Síðan vil ég segja að við í Bjartri framtíð studdum skipun stjórnarskrárnefndar og þessa vinnu, þetta ferli, ekki vegna þess að það uppfyllti okkar drauma heldur vegna þess að okkur fannst mjög mikilvægt að endurskoðunarferlið sem hófst 2009 og speglaðist svo ágætlega í störfum stjórnlagaráðs og þjóðaratkvæðagreiðslunni 2012, þrátt fyrir að það hafi eins og sumir hafa orðað það lent úti í skurði, yrði ekki slegið af, að það yrði einhvers konar framhald á þó svo að það væri í þessari takmörkuðu og hægu mynd. Við höfum stutt þetta ferli öll þessi þrjú ár og í gegnum þessa 50 misárangursríku og að mér skilst mjög misskemmtilegu fundi nefndarinnar, en niðurstaðan var þó að nefndin varð sammála um að skila þessum tillögum til forsætisráðherra og það er skref fram á við.

Ég vil halda því til haga í lok ræðu minnar að þó svo að þessi þrjú ákvæði séu mikilvæg, þau séu ný og mikilvæg viðbót þótt þau séu kannski ekki fullkomin og við vitum að stjórnarskrá er lifandi plagg þó svo að líf hennar breytist kannski hægar en líf annarra laga, þannig að hlutir munu þróast áfram. Það eru mjög mikilvæg atriði sem er ekki tekið á hér, sem ekki náðist samstaða um að skoða strax sem ég vil leggja mikla áherslu á að mega ekki bíða í önnur 20, 30 ár eða eitthvað áður en við förum að ræða endurskoðun stjórnarskrár. Það er að jafna vægi atkvæða landsmanna þannig að allir landsmenn hafi jafnt vægi þegar kosið er til þings eins og er þegar kosið er til forseta Íslands. Ég tel einnig mjög mikilvægt að þjóðaratkvæðisákvæði sé útfært þannig að almenningur fái möguleika til þess að hafa frumkvæði að því að setja mál á dagskrá með fullri virðingu fyrir okkur í pólitíkinni. Ég tel líka að breytingarákvæðið sem stjórnlagaráð leggur til sé mjög mikilvægt, þ.e. að hægt sé að breyta stjórnarskrá með samþykkt Alþingis og vísa síðan beint í þjóðaratkvæðagreiðslu en ekki þurfi að bíða eftir kosningum á milli. Heimild til afsals valdaheimilda er sömuleiðis mikilvægt mál sem þarf að fást botn í. Við finnum það gagnvart EES, Norðmenn hafa reyndar mjög flókið ferli til þess en þeir hafa það þó en við höfum ekki neitt. Síðan er mikilvægt að skýra ákvæði um forseta Íslands.

Ég vil halda þessu til haga við þetta tækifæri. Þó svo að við séum vissulega lögð af stað þá er svo langt, langt frá því að við ljúkum ferðinni hérna. Það er margt eftir sem við þurfum að skoða. En það sem hér er þó fram komið er skref í rétta átt. Ég hef lokið máli mínu.