145. löggjafarþing — 145. fundur,  5. sept. 2016.

vísun máls til nefndar.

[15:03]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Á þingfundi 23. ágúst var 827. máli, þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu, vísað til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Málið átti að fara til utanríkismálanefndar og hefur það verið leiðrétt.