frumvarp um þunna eiginfjármögnun.
Virðulegi forseti. Ég er þeirrar skoðunar að aðalatriðið sé að koma á sanngjarnri reglu og búa svo við afleiðingarnar en sætta sig ekki við að geta ekki sett sanngjarna, almenna reglu vegna þess að það séu einhvers staðar einhverjir samningar útistandandi sem geri það erfitt. Við fáumst bara við afleiðingarnar af því ef á reynir. Ég hef enga ástæðu til að ætla að það verði eitthvert sérstakt vandamál og ég hef heldur enga ástæðu til að ætla að verið sé að sjúga vexti út úr þessum fyrirtækjum langt umfram það sem ætti við ef menn væru að sækja lán eitthvert annað. Það verður bara að koma í ljós þegar menn skoða gögnin. Annars er ágætt að taka þá umræðu og víkka aðeins sjóndeildarhringinn. Það er ekki langt síðan við afgreiddum hér tillögu fyrri ríkisstjórnar ívilnunarsamning fyrir nokkuð öflugt iðnaðarfyrirtæki á Bakka sem fékk um 4 milljarða í meðgjöf, í opinberar framkvæmdir, borgar ekkert tryggingagjald, (Forseti hringir.) er lofað stuðningi til að þjálfa upp starfsfólk og þess háttar. (Forseti hringir.) En menn hafa á sama tíma miklar áhyggjur af því hvort einhver önnur fyrirtæki (Forseti hringir.) starfi ekki samkvæmt alþjóðlegum viðmiðunum um þunna eiginfjármögnun.