145. löggjafarþing — 145. fundur,  5. sept. 2016.

samskipti Íslands og Tyrklands.

[15:21]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég hvet hæstv. ráðherra til dáða í því að tjá þetta viðhorf vegna þess að pólitískir hagsmunir yfirvalda í Tyrklandi innan lands eru auðvitað þeir að einblína meira á Kúrda. Yfirvöld í Tyrklandi átta sig á því að það er meiri samúð í heiminum gagnvart málstað Kúrda enda þjóð sem hvergi fær að vera í friði og auðvitað er samúð með því þjóðarbroti, samúð sem er ekki til staðar gagnvart ríki íslams. Þess vegna er óþolandi að Tyrkir leyfi sér að brjóta á réttindum Kúrda undir því yfirskyni að vera að berjast gegn þeim óvini sem ég fullyrði að heimurinn allur á sameiginlegan, sem er ríki íslams eða Daesh eins og það er kallað stundum.

Ég hvet hæstv. utanríkisráðherra til dáða í því en langar að spyrja hvort hún telji ekki þörf á því að ræða einnig við aðrar þjóðir þar sem Kúrdar búa á landsvæðum sem eru hluti af því svæði sem stundum er kallað Kúrdistan, hvort ekki sé tími til þess að ræða við þær þjóðir einnig um réttindi Kúrda, svo sem yfirvöld í Íran (Forseti hringir.) og fleiri ríkjum til þess að þessi þjóðflokkur (Forseti hringir.) fái einhvern tímann hljómgrunn í alþjóðasamfélaginu um það að þarna sé fólk (Forseti hringir.) sem eigi skilið sama frið og frelsi og aðrar þjóðir.