skattlagning bónusa og arðgreiðslna.
Forseti. Mikil umræða hefur verið að undanförnu um háa bónusa. Fólk er eðlilega reitt enda eru áformin ekki í takt við þau viðmið sem við sem samfélag settum okkur eftir hrun. Hæstv. fjármálaráðherra sagði við þetta tilefni að bónusarnir lyktuðu af sjálftöku en bætti því við, sem skiptir líka máli, að bónusgreiðslur væru meðhöndlaðar eins og tekjur. Og svona gríðarlega háar tekjur launafólks eru skattlagðar tæplega til helminga. Ég hef áhuga á að spyrja hæstv. fjármálaráðherra, sem segir þessar greiðslur lykta af sjálftöku: Hvað finnst honum þá um háar arðgreiðslur fyrirtækjaeigenda í sinn eigin vasa? Það er auðvitað þannig, eins og hv. ráðherra veit, að eigendur fyrirtækja ákveða sjálfir hve mikið þeir greiða sér í arð þegar hagnaður er af rekstri þeirra.
Það er kannski allt í lagi, en það sem ég vek athygli á í þessu sambandi er að hér erum við að ræða margfaldar upphæðir á við þá bónusa sem hæstv. ráðherra fyrirlítur. Arðgreiðslurnar eru ekki hundrað milljónir, þær eru taldar í milljörðum. Það er það sem skiptir máli þegar við ræðum um misskiptingu í þessu landi, þegar við ræðum um ríka eina prósentið, það eru þessar stærðir sem skipta máli. Það sem skiptir máli er hvernig við í stjórnmálunum og lagakerfið tökum á þessu því að bónusar eru skattlagðir hátt í 50% en fjármagnstekjuskattur er aðeins 20%.
Það er staðreynd að þau fyrirtæki sem bera mestan hagnað og borga sem mestan arð í íslensku samfélagi eru sjávarútvegsfyrirtækin. Bara frá því að hæstv. fjármálaráðherra tók við hafa arðgreiðslur sjávarútvegsfyrirtækja verið á milli 12–14 milljarðar á ári en á sama tíma hefur hann og ríkisstjórn hans lækkað veiðigjöld sem þessu nemur, með þeim rökum að greinin hafi bara ekki efni á þeim.
Mig langar að biðja hæstv. ráðherra að útskýra fyrir mér hvernig hann raðar því upp fyrir sér að Kaupþingsmenn sem launþegar beiti sjálftöku varðandi 100 millj. kr. þegar (Forseti hringir.) fáir eigendur fyrirtækja, sér í lagi í sjávarútvegi, greiða sér milljarða í arð árlega. (Forseti hringir.) Hvaða form af sjálftöku er það í huga hv. ráðherra (Forseti hringir.) og hvaða hlutverki finnst honum hann sjálfur hafa í þessum gjörningi (Forseti hringir.) þar sem hér er fyrirkomulag sem býður upp á 20% skatt af þessum (Forseti hringir.) …