145. löggjafarþing — 145. fundur,  5. sept. 2016.

sala á eignum sem komu til frá slitabúum föllnu bankanna.

[16:14]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Mér heyrist að því hafi verið ágætlega tekið hvernig við framkvæmdum vilja þingsins um að stofna þetta félag. Ég hafði lagt það þannig fyrir þingið að eignirnar yrðu vistaðar í Seðlabankanum en þar var nú fyrst og fremst verið að fylgja eldra fordæmi. Svo áttum við úr fjármála- og efnahagsráðuneytinu gott samstarf við þingnefndina við að þróa þessa leið. Við tók tímabil þar sem við þurftum að barna þessa hugmynd og koma upp þessum strúktúr. Því finnst mér hafa verið ágætlega tekið hér í umræðunni.

Ég skil vel þau sjónarmið um að menn vilji gæta þess við hvert skref að þeim markmiðum sem lagt var upp með sé náð. Ég er þeirrar skoðunar að þeim hafi verið vel náð.

Það er spurt hvort það sé sjálfstætt markmið að koma öllum eignum í verð fyrir áramót. Það er ekki tilfellið. En við höfum sagt að það væri raunhæft og líklegt þar sem svo hátt hlutfall eignanna væri auðseljanlegar eignir að stór hluti eignanna yrði kominn í verð fyrir áramót. Það virðist vera að ganga eftir að langmestu leyti eins og ég nefndi, 57 milljarðar komnir inn á stöðugleikareikning ríkissjóðs nú þegar. Ég vænti þess að á haustmánuðum verði látið reyna á sölu í öðrum skráðum félögum og eftir atvikum óskráðum, allt í samræmi við þá ráðgjöf sem félagið fær.

Varðandi verðmatið er auðvitað ekki gott að segja hvort það mun ganga eftir. Það er ekkert enn sem komið er sem bendir til þess að eignirnar hafi verið annaðhvort of- eða vanmetnar í sjálfu sér en það er erfitt t.d. að spá fyrir um hvernig verður með endanlegt virði fjársópseigna. Það verður framtíðin að leiða í ljós. En í það minnsta (Forseti hringir.) erum við komin með mjög drjúgan hluta virðisins nú þegar í hendurnar.