145. löggjafarþing — 147. fundur,  6. sept. 2016.

Vatnajökulsþjóðgarður.

673. mál
[14:08]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Höskuldur Þórhallsson) (F):

Virðulegi forseti. [Kliður í þingsal.] Ég mæli fyrir nefndaráliti umhverfis- og samgöngunefndar um frumvarp til laga (Forseti hringir.) um breytingu á lögum um Vatnajökulsþjóðgarð, nr. 67/2007, með síðari breytingum.

Nefndin fjallaði um málið og fékk til sín fjölmarga aðila sem óþarfi er að telja upp hér. Með frumvarpinu eru lagðar til nokkrar breytingar á lögum um Vatnajökulsþjóðgarð. Breytingarnar snúa í fyrsta lagi að því að sett eru ákvæði um framkvæmdastjóra og ábyrgð hans, í öðru lagi er ákvæðum um þjóðgarðsverði breytt svo samræmi sé á milli ábyrgðar þeirra og framkvæmdastjóra, í þriðja lagi eru lagðar til breytingar á samspili laganna, stjórnunar- og verndaráætlunar og reglugerðar um þjóðgarðinn, í fjórða lagi eru ítarlegri ákvæði um réttaráhrif stjórnunar- og verndaráætlunar og í fimmta lagi eru lögð til ákvæði um atvinnustarfsemi í þjóðgarðinum og um leyfisveitingar vegna atburða, framkvæmda og starfsemi innan þjóðgarðsins. Breytingarnar byggjast m.a. á skýrslu starfshóps um endurskoðun á stjórnfyrirkomulagi Vatnajökulsþjóðgarðs frá ágúst 2013, en samkvæmt 4. tölulið ákvæðis til bráðabirgða við lög nr. 60/2007 átti að endurskoða stjórnfyrirkomulag Vatnajökulsþjóðgarðs eigi síðar en 1. janúar 2013 í samstarfi ríkis og sveitarfélaga og meta þá hvernig stjórnfyrirkomulag garðsins hefði gengið.

Ég hafði ekki hugsað mér að reifa nefndarálitið ítarlega. Við töldum rétt að styrkja stjórnfyrirkomulag Vatnajökulsþjóðgarðs. Það var ágætissátt um vinnulag og verkferla í umhverfis- og samgöngunefnd. Við teljum að með frumvarpinu sé verið að styrkja starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs en við leggjum til nokkrar breytingar sem snúa að stjórnunar- og verndaráætlun, umgengni og starfsemi í þjóðgarðinum og valdheimildir þjóðgarðsvarða. Þannig eru lagðar til breytingar á 12. gr. laganna sem eru til einföldunar og aukins skýrleika. Nefndin bendir m.a. á að í nýrri 3. mgr. 12. gr. mun koma fram að í stjórnunar- og verndaráætlun, sem er meginstjórntæki þjóðgarðsins, verði heimilt að setja skilyrði um hvernig framkvæmdum skuli háttað og um eftirlit með þeim til að tryggja að framkvæmdir raski ekki að óþörfu lífríki, jarðmyndunum, vatnafari, landslagi eða menningarminjum í þjóðgarðinum. Á grundvelli þessa ákvæðis verður m.a. hægt að setja skilyrði sem talin verða heppileg á hverjum stað svo framkvæmdir falli vel að náttúru og landslagi.

Við fjölluðum um stöðu framkvæmdastjóra en í frumvarpinu er lagt til að kveðið verði skýrt á um það að framkvæmdastjóri beri ábyrgð líkt og forstöðumenn stofnana. Óþarfi er að rekja það hér en í 38. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, er kveðið á um lagalega og rekstrarlega ábyrgð forstöðumanna.

Við ræddum nokkuð stöðu áheyrnarfulltrúa í stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs en samkvæmt 4. gr. laganna á einn fulltrúi tilnefndur af útivistarsamtökum áheyrnaraðild að fundum stjórnar. Samkvæmt upplýsingum nefndarinnar hefur þetta fyrirkomulag gengið vel frá stofnun þjóðgarðsins þar til nýlega að uppi voru mismunandi sjónarmið um réttindi áheyrnarfulltrúa og þá hafa útivistarsamtök óskað eftir því að fá fulla aðild að stjórninni. Við teljum ekki rétt að leggja til breytingar á skipan stjórnarinnar enda mundi það riðla valdahlutföllum sem ákveðin voru þegar þjóðgarðurinn var stofnaður í fullri sátt sveitarfélaga á svæðinu. Nefndin telur hins vegar rétt að taka fram þá túlkun sína á 4. gr. laganna að í áheyrnaraðild að fundum stjórnar felist málfrelsi og tillöguréttur en ekki atkvæðisréttur. Í breytingum frumvarpsins og þeim breytingum sem nefndin leggur til á II. kafla laganna felst m.a. að ferðamálasamtök skulu sameiginlega tilnefna einn fulltrúa sem áheyrnarfulltrúa í stjórn þjóðgarðsins auk fulltrúa útivistarsamtaka og samkvæmt tillögum að breytingum á 5. gr. skal stjórn þjóðgarðsins setja sér starfsreglur þar sem framangreindur skilningur á stöðu áheyrnarfulltrúa kemur fram með skýrum hætti.

Við umfjöllun nefndarinnar komu fram þau sjónarmið að í lögunum ætti að kveða á um að aðalskrifstofa þjóðgarðsins skyldi vera staðsett á starfssvæði þjóðgarðsins. Þessi tillaga byggist á því sjónarmiði að eðlilegt sé að starfsemi þjóðgarðsins sé að mestu leyti á starfssvæði hans. Við lýsum skilningi á því sjónarmiði en það varð niðurstaðan að benda á að stjórnfyrirkomulag þjóðgarðsins byggist á valddreifðu fyrirkomulagi en ekki miðstýrðu. Því er rétt að halda því til haga að stjórnin taki ákvörðun um staðsetninguna frekar en að hún sé ákveðin með lögum eða samkvæmt ákvörðun ráðherra. Með því er mikilvægu valdi um starfsemi skrifstofu þjóðgarðsins haldið hjá stjórninni og þar með hjá hagsmunaaðilum sem koma að stjórn þjóðgarðsins.

Ég hef hér reifað nokkur atriði að öðrum ólöstuðum. Þá er rétt að benda á að í 15. gr. frumvarpsins er lagt til að nýr kafli bætist við lögin þar sem kveðið verði á um samninga vegna atvinnutengdrar starfsemi í þjóðgarðinum og leyfisveitingar vegna skipulagðra viðburða og verkefna. Þessum breytingum tengdum er 8. töluliður 5. gr. frumvarpsins þar sem bætt er við því nýja verkefni stjórnar að hafa yfirumsjón með gerð atvinnustefnu fyrir þjóðgarðinn. Nefndin telur ný ákvæði um samninga vegna atvinnustarfsemi í þjóðgarðinum vera mjög til bóta og til þess fallin að vinna að verndarmarkmiðum laganna. Ásókn í þjóðgarðinn eykst stöðugt og sú aukna ásókn kallar á umsvifameiri atvinnustarfsemi. Mikilvægt er að þjóðgarðurinn hafi nauðsynleg tæki til að stýra ágangi á náttúru þjóðgarðsins á sjálfbæran hátt.

Við leggjum einnig til að í nýrri 15. gr. b verði kveðið á um leyfisveitingar vegna skipulagðra viðburða sem kalla á aðstöðu, mannafla eða meðferð tækja í þjóðgarðinum. Þar er í dæmaskyni vísað m.a. til kvikmyndagerðar en gerst hefur að hluta þjóðgarðsins hefur verið lokað fyrir umferð vegna vinnu við gerð kvikmynda. Í 2. mgr. ákvæðisins er kveðið á um heimild þjóðgarðsvarðar til að loka tímabundið hlutum garðsins vegna viðburðanna. Nefndin ræddi ákvæðið nokkuð en fram komu sjónarmið um að með ákvæðinu væri þjóðgarðsvörðum veitt of víðtæk völd til lokunar á hlutum garðsins án samráðs við viðkomandi svæðisráð. Nefndin telur ekki ástæðu til að leggja til breytingar á ákvæðinu og telur þjóðgarðsverði vera vel til þess fallna að meta hvort aðstæður séu þannig að rétt sé að heimila tímabundnar lokanir svæða enda annast þeir daglegan rekstur og stjórn viðkomandi rekstrarsvæðis. Aðrar heimildir þjóðgarðsvarða til lokunar á hlutum garðsins eru vegna aðsteðjandi náttúruvár eða ef landsvæði eða lífríki liggja undir skemmdum þannig að talið sé nauðsynlegt að grípa til tafarlausra aðgerða.

Að lokum vil ég nefna að nefndin ræddi það nokkuð að ljóst er að auka þarf fjármagn til rekstrar þjóðgarðsins. Með auknum fjölda gesta eykst þörf fyrir innviðauppbyggingu til verndar náttúru þjóðgarðsins og til að búa starfsemi innan þjóðgarðsins viðunandi skilyrði. Fjölga þarf starfsmönnum þjóðgarðsins sem vinna á starfssvæði hans en einnig þarf að fjölga á skrifstofu þjóðgarðsins með auknum umsvifum. Með fleiri starfsmönnum skapast tækifæri til að styrkja rekstrareiningar þjóðgarðsins og færa fleiri þætti starfseminnar nær þjóðgarðinum sjálfum. Samkvæmt 21. gr. laganna er heimilt að innheimta gestagjöld innan þjóðgarðsins sem ætlað er að mæta kostnaði við þjónustu og eftirlit með dvalargestum. Með breyttri 21. gr. laganna verður þjóðgarðinum heimilt að innheimta þjónustugjöld vegna leyfisveitinga og samninga sem skulu standa undir kostnaði við veitingu leyfa, umsjón og eftirlit með leyfisskyldri starfsemi. Gæta þarf að því að þjóðgarðurinn fái nægjanlegt fé af fjárlögum svo mögulegt verði að ráðast í mikilvæga innviðauppbyggingu svo þjóðgarðurinn megi vaxa og dafna landsmönnum öllum til hagsbóta.

Að mati nefndarinnar er mikilvægt að frumvarpið nái fram að ganga enda til mikilla bóta fyrir starfsemi þjóðgarðsins. Með því verður kveðið skýrt á um ábyrgð á fjárreiðum í samræmi við lög og önnur ákvæði laganna skýrð í ljósi reynslu síðustu ára og brugðist er við ábendingum sem nefndinni bárust í fullu samráði hlutaðeigandi hagsmunaaðila.

Nefndin leggur því til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir og lagðar eru til í sérstöku þingskjali. Hv. þm. Róbert Marshall, hv. þm. Vilhjálmur Árnason og hv. þm. Ásta Guðrún Helgadóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en rita undir álit þetta samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fastanefnda. Að öðru leyti skrifa undir frumvarpið auk þess sem hér stendur og er formaður umhverfis- og samgöngunefndar, hv. þingmenn Katrín Júlíusdóttir, Haraldur Einarsson, Birgir Ármannsson, Elín Hirst og Svandís Svavarsdóttir auk þeirra sem ég taldi upp áðan.

Ég vil þakka nefndinni fyrir gott samstarf. Ég held að góð niðurstaða hafi náðst í þetta mál og ég held að frumvarpið muni leiða það af sér að okkar mikilvægi og fallegi þjóðgarður verði betri, betur verði gætt að náttúruvernd og að uppbygging innviða og allt utanumhald og umsýsla verði með faglegri og betri hætti í framtíðinni.