145. löggjafarþing — 147. fundur,  6. sept. 2016.

meðferð sakamála og meðferð einkamála.

660. mál
[17:43]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti allsherjar- og menntamálanefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála og lögum um meðferð einkamála (endurupptaka). Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bryndísi Helgadóttur frá innanríkisráðuneytinu, Grím Sigurðarson frá Lögmannafélagi Íslands og Björn L. Bergsson frá endurupptökunefnd.

Í frumvarpi þessu eru lagðar til nauðsynlegar lagabreytingar sem eru til komnar vegna niðurstöðu Hæstaréttar Íslands í máli nr. 628/2015 frá 25. febrúar 2016 um að fyrirmæli 2. málsliðar 1. mgr. 214. gr. laga um meðferð sakamála séu andstæð stjórnarskrá. Hæstiréttur benti á að endurupptökunefnd væri stjórnsýslunefnd og með 3. mgr. 215. gr. laga um meðferð sakamála, samanber 1. mgr. 214. gr. sömu laga, væri nefnd sem heyrði undir framkvæmdarvaldið falið hlutverk sem gæti fellt úr gildi úrlausnir dómstóla. Slík skipan væri andstæð 2. gr. stjórnarskrárinnar og væri lagaákvæðið ekki gild réttarheimild og yrði því ekki beitt. Samsvarandi heimild væri í lögum um meðferð einkamála.

Nefndin áréttar að frumvarpið felur ekki í sér endurskoðun á fyrirkomulagi við endurupptöku mála en nefndin fékk þær upplýsingar að slík vinna væri þegar hafin í innanríkisráðuneytinu.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Undir álit þetta rita Guðmundur Steingrímsson, 1. varaformaður, Vilhjálmur Árnason, framsögumaður málsins, Líneik Anna Sævarsdóttir, sem hér flytur framsögu um málið, Haraldur Einarsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Jóhanna María Sigmundsdóttir og Ásta Guðrún Helgadóttir, en fjarverandi við afgreiðslu málsins voru Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir og Geir Jón Þórisson.