145. löggjafarþing — 148. fundur,  7. sept. 2016.

fullgilding Parísarsamningsins.

858. mál
[16:15]
Horfa

utanríkisráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég hika ekkert við að segja aftur að Ísland er í hópi metnaðarfyllstu ríkja við gerð samningsins og vill mjög metnaðarfullan samning. Ég held að við eigum ekki að vera feimin við það orðalag og alls ekki heldur gera lítið úr því. Þetta er sannkallaður gleðidagur og það er sönn ánægja að vera á þingi og mæla fyrir samningnum.

Við viljum að sjálfsögðu starfa með öðrum Evrópuríkjum og við erum að því. Eins og við gerum þetta erum við í samstarfi við Evrópusambandið vegna skuldbindinga samkvæmt Kyoto-bókuninni. Markmið okkar þar er 20% minnkun losunar til ársins 2020. Skuldbindingar okkar eftir þann tíma verða endanlega ákvarðaðar með ESB eins og þingmaðurinn kom inn á. Það er eðlilegt framhald á góðu samstarfi. Það skiptir líka miklu máli fyrir okkar atvinnulíf að við séum með svipaðar og sambærilegar reglur í loftslagsmálum og okkar helstu viðskiptalönd á EES-svæðinu. Eins og ég segi er markmið okkar 20% minnkun losunar til ársins 2020.