almannatryggingar o.fl.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina vegna þess að þetta er eitthvað sem ég hef fengið sífellt meiri áhuga á sjálf. Ég sökkti mér t.d. ofan í svokallaða atferlishagfræði þegar ég var formaður verðtryggingarnefndar á síðasta kjörtímabili og hef verið að kynna mér í auknum mæli hvernig stjórnvöld t.d. í Bretlandi hafa verið að nota hugmyndafræði atferlishagfræði til þess að móta framfærslukerfi eins og t.d. almannatryggingakerfið, grundvallarkerfi, þannig að þau nýtist betur til að ná þeim markmiðum sem við setjum og ná betur til fólks þannig að það skilji betur hvernig kerfin virka.
Dæmi um þetta er þegar tekin var ákvörðun um að hækka frítekjumark atvinnutekna. Við töluðum um það og allir voru mjög ánægðir með að geta gert það og ellilífeyrisþegar töldu sig geta nýtt sér þetta, þeir ættu ákveðinn frítekjurétt og gætu unnið sér inn ákveðnar tekjur. En vegna þess hvernig kerfið er uppbyggt núna þá fékk ég eitt dæmi á borðið hjá mér þar sem viðkomandi hafði fengið endurkröfu frá almannatryggingum. Hann var með 140 þús. kr. á ári frá lífeyrissjóði, hafði skilað tekjuáætlun inn hvað það varðaði en hafði líka fengið tilboð um að vinna sér inn 140 þús. kr. Hann hélt að hann gæti gert það án þess að það mundi skerða bætur hans. En af því að það er ekki neitt frítekjumark á sérstöku framfærsluuppbótinni þá fékk hann endurkröfu. Þegar við reiknuðum út hvernig frumvarpið mundi koma út fyrir þennan einstakling þá kom hann mun betur út. En ef hann væri hins vegar með 140 þús. kr. á mánuði úr lífeyrissjóði og 140 þús. kr. í atvinnutekjur mundi hann fá minna í nýju kerfi en í núverandi kerfi. Að því leyti tel ég að þetta verði réttlátara og betra kerfi.