rekstrarumhverfi fjölmiðla.
Virðulegur forseti. Ég fagna tillögu menntamálaráðherra um þverpólitískt samstarf um að bæta rekstrarskilyrði fjölmiðla í landinu og treysti því að því fylgi alvara af hálfu bæði menntamálaráðherra og fjármálaráðherra ríkisstjórnarinnar, að láta verkin tala í þessu efni. Við stöndum að mörgu leyti frammi fyrir svipaðri stöðu gagnvart fjölmiðlunum og fyrir bókaútgáfunni í landinu fyrir 25 árum. Þá urðum við að spyrja okkur hvort við vildum hafa íslenskar bókaútgáfur að gefa út bækur á íslensku með öflugum hætti og ákváðum að fella af þeim söluskattinn vegna þess að bókaútgáfurnar fóru einfaldlega unnvörpum á hausinn. Ég held að við þurfum að kynna aðgerðir sem samstaða getur verið um þvert á flokka til að bæta þessi rekstrarskilyrði, en það þurfa þá að vera aðgerðir sem ná ekki bara til einkarekinna ljósvakamiðla heldur líka til vaxandi netmiðla, til gömlu dagblaðanna og til að bæta skilyrði Ríkisútvarpsins.