íslensk tunga í stafrænum heimi.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrirspurnina. Ég tek undir það sem hv. þingmaður sagði um mikilvægi þessa máls. Ég tel tunguna reyndar eina af frumforsendum þess að hér þrífist íslenskt samfélag, hér sé sjálfstæð þjóð. Hvað varðar stöðu málsins þá er rétt að rifja upp að ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum að veita sérstaka fjármuni til þessa verkefnis, eða upphafs þess, ásamt því að atvinnulífið kom með fjármuni. Þá var ráðinn starfsmaður til þess að fara vel yfir stöðu mála, hvað hefði verið unnið, hvað væri óunnið o.s.frv. Sá starfsmaður hefur lokið þeirri yfirferð og skilað til okkar, við höfum átt fund með honum, við erum ekki enn þá komin með sjálfa skýrsluna, en við höfum farið yfir næstu skref málsins. Tillagan sem er komin fram og ég hef síðan skilað fram sem mínum hugmyndum varðandi fjárauka er að strax verði ráðist í næsta fasa verkefnisins sem er í raun og veru verkefnislýsingin, þ.e. hvaða tækni þarf að beita og hvernig henni er beitt til að nýta þá gagnagrunna sem við eigum og reyndar hvað þarf að gera varðandi gagnagrunnana. En fyrst og síðast er það hið flókna tæknilega vandamál að smíða, ef ég má nota það orðalag, vélina sem þarna er um að ræða, lýsa henni nákvæmlega og hvað má ætla að það kosti að búa hana til og hvernig er best að vinna tæknivinnuna með tæknifyrirtækjunum, en það þurfum við að gera. Það er áætlað að sú vinna kosti í kringum 50 milljónir.
Það sem ég hef gert er að ég hef lagt til að þessu verði mætt í fjárauka núna, þ.e. farið strax í vinnuna á þessu ári, tíminn nýttur fram að áramótum og væntanlega eitthvað fram eftir næsta ári, við verkefnislýsinguna. Hún er gríðarlega mikilvæg vegna þess að hún þarf að vera til til þess að hægt sé að ráðast í verkefnið, einstaka þætti (Forseti hringir.) smíðaverksins, (Forseti hringir.) hvernig tækniþátturinn verður látinn spila saman við gagnagrunna og annað slíkt. (Forseti hringir.) Ég tel að þetta ætti að skýra málið fyrir hv. þingmanni hvar þetta stendur nákvæmlega.