145. löggjafarþing — 149. fundur,  8. sept. 2016.

almannatryggingar.

197. mál
[11:52]
Horfa

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Mér finnst það sorglegt ef þetta á að fara að snúast um staðgöngumæðrun. Þetta snýst auðvitað um réttindi barns sem hefur ekkert um það að segja með hvaða hætti það hefur komið inn í veröldina, er algjört viðfang í þessu máli og mér finnst fráleitt að við förum að láta pólitískan ágreining um aðra hluti trufla okkur svo að við getum ekki tekið ákvarðanir um að tryggja réttindi barns, hvernig svo sem það er í heiminn komið. Ég get ekki greitt atkvæði gegn þessu.