145. löggjafarþing — 149. fundur,  8. sept. 2016.

aukinn stuðningur vegna tæknifrjóvgana.

20. mál
[11:55]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég sit hjá við atkvæðagreiðslu um breytingartillöguna en mun greiða atkvæði með tillögunni sem lítur út fyrir að vera svo breytt. Ástæðan er sú að ég er ekki sannfærður um að breytingarnar séu endilega mér að skapi en málið er það í heild sinni.