almannatryggingar o.fl.
Hæstv. forseti. Ég vil lýsa ánægju minni yfir því að þetta frumvarp skuli vera komið hér fram. Það er byggt á niðurstöðum nefndar um endurskoðun almannatrygginga sem Pétur heitinn Blöndal stjórnaði í byrjun en sem ég tók síðan við stjórn á við veikindi hans og fráfall. Ég verð að lýsa sérstakri ánægju minni yfir því að þau meginmarkmið sem voru niðurstaða nefndarinnar, þ.e. gegnsæið og einfaldleikinn í kerfinu skuli skila sér hér inn í frumvarpið.
Víst er að frumvarpið eins og það liggur fyrir mun ekki leysa hvers manns vanda vegna þess að það sem slíkt er almennt og fjallar um almenna endurbót á þeim lögum sem við höfum haft hér undanfarna áratugi. Þau lög hafa verið stagbætt og eru svo flókin eins og nú háttar til að það er ekki nokkur maður til á Íslandi sem skilur þau til hlítar. Við höfðum afar góðan starfsmann í nefndinni sem lá undir grun um að vera eini maðurinn á Íslandi sem skildi almannatryggingakerfið fullkomlega. Hann lét þess getið mjög snemma í starfinu að það væri ofmat, hann gerði það ekki. Það sér hver heilvita maður að þegar kerfið er orðið svo flókið að enginn getur gengist við því að geta skilið það almennilega er kominn tími til að breyta því. Á undan þessari nefnd hafa líklega verið fjórar, fimm slíkar nefndir að störfum. Ég er afar þakklátur fyrir að þetta er væntanlega í fyrsta skipti sem niðurstöður slíkrar nefndar fara svo langt að tillögur hennar fara inn í frumvarp og mælt er fyrir þeim hér á hinu háa Alþingi. Það er fagnaðarefni.
Það er einnig ýmislegt áhugavert í frumvarpinu og til bóta, þar á meðal það að bjóða fólki upp á sveigjanleg starfslok, þ.e. að starfslok geti verið allt frá 65 ára aldri og til 75 ára og áttræðs þegar fram í sækir, vegna þess að við sem þjóð erum að eldast en við erum hress lengur. Það er líka talað um að við getum tekið hálf eftirlaun og unnið hálft starf, en það kemur í veg fyrir félagslega einangrun sem oft fylgir starfslokum. Í heild má segja að þarna sé stigið mjög jákvætt skref.
Vonbrigðin í málinu eru þau að tillögur nefndarinnar um starfsgetumat, sem ráðherra var búinn að búa um í mál sem yrði eins konar tilraunaverkefni í þá átt að setja upp starfsgetumat, verður ekki að veruleika núna vegna andstöðu Öryrkjabandalags Íslands. Mér þykir það verulega leitt. Ég hef lýst því áður að vegna þess að mjög góð var samstaða í nefndinni um tilurð skýrslunnar sem liggur frumvarpinu til grundvallar, er afskaplega leitt að Öryrkjabandalag Íslands skyldi ekki vilja eða treysta sér til að taka fullan þátt í störfum nefndarinnar allt til enda og hafa þar með áhrif á efni þess, félögum sínum til hagsbóta og heilla.
Öryrkjar sáu sér ekki heldur fært að hafa fulltrúa í því starfi sem unnið var áfram á vegum ráðuneytisins við frumvarpasmíð og það harma ég mjög. Ég tel að með aðkomu þessa hóps að vinnunni allt til enda hefði niðurstaðan getað orðið enn þá betri en sú sem birtist hér. Ég tel afskaplega brýnt að samtök eins og Öryrkjabandalagið hafi áhrif á hvernig framtíðarhagur og framtíðaraðstæður félagsmanna þess eru. Því gerði Landssamband eldri borgara sér hins vegar grein fyrir og tóku þátt í starfi nefndarinnar allt til enda og höfðu þar með áhrif á innihald frumvarpsins.
Hér er um að ræða eina mestu breytingu sem orðið hefur á þessu kerfi í áratugi. Ég er mjög stoltur af því að hafa átt svolítinn þátt í því að svo gæti orðið.
Það er líka annað sem ber að fagna, þ.e. að það skuli í sjálfu sér vera markmið að greina þau úrræði sem eru á Íslandi til töku lífeyris. Því ber að fagna að skerpt sé á hlutverki almannatrygginga þannig að þær grípi þá sem ekki hafa í önnur hús að vernda, þ.e. að þeir sem hafa burðugan lífeyrissjóð og geta staðið á eigin fótum fjárhagslega geri það en að aðalaáherslan sé lögð á þá sem minnst hafa.
Það er alveg ljóst að það eitt og sér sem er í frumvarpinu mun ekki duga öllum. Það er alveg ljóst í mínum huga að t.d. sá hópur aldraðra sem býr við kröppust kjör þarf á sértækum aðgerðum að halda. Þess vegna er mjög nauðsynlegt að greina vanda þess hóps til þess að grípa til þeirra ráðstafana sem nauðsynleg kunna að verða til að jafna hlut þeirra. Fljótt á litið hefur maður á tilfinningunni að sá hópur sé það fólk sem býr annaðhvort í leiguhúsnæði eða í skuldugu eigin húsnæði og þarf að glíma við mikinn læknis- og lyfjakostnað. Ég held að sé algjörlega ljóst að ef við ætlum að fanga vanda þessa fólks — og það er nákvæmlega eins með þann hóp öryrkja sem er í mestum vanda staddur, má segja að þetta séu fjögur, fimm þúsund manns í hvorum hópi fyrir sig — tel ég algjörlega nauðsynlegt að vandi þessa hóps sé greindur og skoðað hvernig hann birtist þannig að hægt sé að grípa til ráða þar að lútandi. Ég held að sé ekki mjög flókið. Ef þetta snýst t.d. um lyfjakostnað er hægt að gera ýmsar breytingar þar á. Ég minni á að fyrir um tveimur og hálfu ári síðan voru uppi hugmyndir hér um að setja lyf t.d. í lægra virðisaukaskattsþrep. Það mundi strax lækka kostnaðinn.
Síðan er það annað sem er náttúrlega mjög umhugsunarvert að þeir sem berjast hvað mest fyrir því að hér sé frelsi í að flytja inn ýmislegt til landsins eins og landbúnaðarafurðir og fleira, taka það ekki í mál að lyf og lyfjakaup séu boðin út á alþjóðamarkaði og telja mikinn héraðsbrest verða ef slíkt yrði gert. Auðvitað á ekki að hlusta á slíka sérhagsmunagæslu. Það á náttúrlega að taka á lyfjakostnaði í þessu landi með öllum þeim ráðum sem við höfum. Við eigum ekki að láta það stöðva okkur þótt einhverjir sérhagsmunahópar bregðist illa við því vegna þess að það er allt of mikið í húfi. Það er það í húfi að bæta lífskjör og líf hóps sem á mjög undir högg að sækja. Okkur ber skylda til þess öllum hér að reyna að bæta þar úr eins og best við getum.
Svo ég segi það aftur er þetta frumvarp mjög góð byrjun og ég vona innilega að nefndarmenn í hv. velferðarnefnd leggi sig fram um að afgreiða það fljótt og vel þannig að þær kjarabætur sem hér eru komi þeim til góða sem á þeim þurfa að halda.