hlutdeild sveitarfélaga í svokölluðum bankaskatti.
Herra forseti. Það er alveg hárrétt að tjónið, ef kalla mætti tjón, kannski frekar áhrifin af þeim lagabreytingum sem við gerðum á sínum tíma, hafa komið fram með misjöfnum hætti á sveitarfélögin. Það þýðir samt sem áður ekki að þau sveitarfélög sem hafa viljað fá þessa fjármuni inn og þeim úthlutað á grundvelli almennu reglnanna hjá jöfnunarsjóði hafi ekkert til síns máls. Ég hef verið þeirrar skoðunar að það væri réttlátast að tekjunum yrði dreift í samræmi við það hvernig áhrifin hafa komið fram.