skýrsla um seinni einkavæðingu bankanna.
Virðulegi forseti. Ég vil gera alvarlegar athugasemdir sem nefndarmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd við þá staðreynd að hv. þingmenn Vigdís Hauksdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson hafa sett fram í eigin nafni ávirðingar vegna máls sem hefur verið til meðferðar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og hefur verið afgreitt þar, rætt þar af fulltrúum allra flokka og efnisleg afgreiðsla náðst um málið. Við hverju er að búast hér í framtíðinni? Megum við búast við að meiri hluti umhverfisnefndar komi með álit um neyðarlögin og forsendur þeirra eða eitthvað annað fráleitara? Megum við búast við að einhver önnur nefnd komi með einhverja aðra hluti sem hafa verið afgreiddir fyrir löngu síðan af þinginu?
Það er mjög mikilvægt að þingið hafi eftirlits- og rannsóknarhlutverk gagnvart framkvæmdarvaldinu. En hæstv. forseti verður að verja réttar nefndir þingsins fyrir yfirgangi fólks sem gengur fram með þessum hætti eins og formaður og varaformaður fjárlaganefndar sem misnota aðstöðu sína og leggja málið (Forseti hringir.) aldrei fyrir nefndina sjálfa. Hæstv. forseti ber skylda til þess (Forseti hringir.) að verja eftirlitshlutverk þingsins gagnvart framkvæmdarvaldinu með skýrum hætti og stöðva svona framgöngu.