145. löggjafarþing — 151. fundur,  13. sept. 2016.

skýrsla um seinni einkavæðingu bankanna.

[14:18]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Af þessu tilefni vill forseti segja eftirfarandi: Meiri hluti nefndar getur tekið ákvörðun um að taka mál upp á grundvelli 26. gr. þingskapalaganna. Þannig virka störf nefndanna. Það er meiri hlutinn sem þar ræður að lokum eins og hv. þingmanni er mætavel ljóst eins og forseta. Hins vegar er það alveg rétt sem hv. þingmaður segir að málið hefur ekki hlotið afgreiðslu úr nefndinni fyrr en nefndin hefur fengið tækifæri til að taka afstöðu til þess. Sem slíkt er málið þar með ekki komið inn til þingsins fyrr en þeirri afgreiðslu lýkur.

Forseti varð ekki var við það í þeim umfjöllunum sem um þetta mál voru í gær og hafa verið í morgun að litið hafi verið þannig á að nefndin hafi afgreitt málið á formlegum fundi.