145. löggjafarþing — 151. fundur,  13. sept. 2016.

samningur Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur.

783. mál
[15:19]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Minni hlutinn í atvinnuveganefnd leggur til að þessu máli verði vísað til ríkisstjórnarinnar sem láti fara fram heildstæða greiningarvinnu á áhrifum samningsins, en slík greiningarvinna liggur ekki fyrir, og að því loknu verði tekin upplýst afstaða til þess hvort hafna beri samningnum eða samþykkja hann með tilliti til heildarhagsmuna íslensks samfélags.

Við vinstri græn munum því greiða atkvæði með málsmeðferðartillögunni. Það má eiginlega segja að njóti hún ekki stuðnings segi sig sjálft að við munum greiða atkvæði gegn því að þingsályktunartillagan verði samþykkt.