145. löggjafarþing — 151. fundur,  13. sept. 2016.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

853. mál
[15:54]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Sigrún Magnúsdóttir) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og get alveg skilið að það geti að einhverju leyti truflað hana, svo ég noti sama orð og hv. þingmaður nefndi. Vitaskuld tókum við þetta til skoðunar og það var rætt í ráðuneytinu, ég er alveg hreinskilin með það. En mér fannst vegna þeirrar umfjöllunar sem hefur verið á þessu kjörtímabili um þennan málaflokk, þá liggur miklu meiri vitneskja þegar fyrir hjá þeim þingmönnum sem sitja í atvinnuveganefnd en hjá öðrum. Ég verð að segja að ég er nú bara mjög ánægð ef þetta er það eina sem truflar hv. þingmann.