áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Þessi tillaga, þessi tiltekna virkjun, á náttúrlega eftir að fara í mat á umhverfisáhrifum framkvæmda eins og allar aðrar. (KJak: Gamalt umhverfismat sem er búið að kæra …) Ég er búin að leggja fram þessar tillögur og vitaskuld veit ég að þar með eru þær bornar fram í mínu nafni. Þessi tillaga, ég er að samþykkja hana eins og verkefnisstjórn um rammaáætlun leggur hana fram vegna þess að ég trúi á það, þegar kemur að því mati, og ég sagði það í ræðu minni að það ætti ekki að fara ofan í ákveðin atriði, verkefnisstjórnin fer ekki ofan í ákveðin atriði heldur er þetta heildarmat. Þannig eru lögin. Þess vegna höfum við fleiri þætti sem eiga að taka á þessu eins og þeim virkjunum sem hv. þingmaður gat um. Það er mat á umhverfisáhrifum framkvæmda þegar þar að kemur.