145. löggjafarþing — 151. fundur,  13. sept. 2016.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

853. mál
[18:28]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla bara að segja það strax að ég fyrirgef hv. þingmanni allar hans misgjörðir og ég ætla að hætta að kalla hann „og fleiri“.

Hvað varðar spurninguna er svarið einfalt: Það er mjög skammur tími til stefnu. Það eru mjög mörg stór mál uppi. Við getum ekki náð að afgreiða öll þessi mál. Það er algjörlega á hreinu, herra forseti.