145. löggjafarþing — 151. fundur,  13. sept. 2016.

ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 97/2016 um breytingu á XVI. viðauka við EES-samninginn.

864. mál
[19:24]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að halda langa ræðu um þetta, vil bara fyrst lýsa ánægju minni með málið, en ég kem hér upp til þess að svara hv. 4. þm. Reykv. n., Össuri Skarphéðinssyni, (Gripið fram í.)sem fór út í pínulitlar pælingar um það hvernig íslenska þingið gæti haft meiri áhrif á Evrópuþinginu. Mér finnst það ekki fráleit hugmynd sem hv. þingmaður nefnir að þingflokkarnir hér reyni að gera það í samráði við systurflokka sína á Evrópuþinginu. Aftur á móti hefði ég haldið að eftir þær umræður sem hafa átt sér stað um Evrópusambandið og aðildarumsókn Íslands þyrftum við formlegri ferla til þess að gera það vegna þess að slík samskipti milli systurflokka eru væntanlega alltaf afskaplega óformleg og ábyggilega í eðli sínu ógagnsæ í þokkabót.

Talandi um ógagnsæi. Sú tillaga sem liggur hér fyrir frá hæstv. utanríkisráðherra kemur til með að auka gagnsæi og auðvelda þá ferla sem varða opinber innkaup. Eftir að hafa skoðað þetta mál aðeins þá fékk ég þá hugljómun að ekki væri hægt að vera á móti þessu, ekki eins og málið kemur fram hérna. Kannski er eitthvað í ítargögnum sem menn gætu komist að að væri algjörlega hræðilegt, en ef maður les tillöguna eins og hún er blasir við að þetta er einfaldlega gott mál. Og þá allt í einu átta ég mig á því að ég fæ yfirleitt þessa tilfinningu við að lesa EES-mál. Þetta virðast almennt vera vel gerð mál. Það er búið að hugsa mikið um þau, mjög margt hefur verið haft til hliðsjónar við að reyna að finna lausnir sem henta öllum, enda er það jú heili punkturinn á bak við Evrópusambandið, að samræma markaði þannig að þeir virki sem best saman. Það er heila pælingin.

Mér verður stundum hugsað til farsímanna, ég er með Android farsíma og hann er með USB-tengi. Það er ekki slæmt að aðrir framleiðendur hafa ekki aðlagað sig að einhverri allt annarri tækni, það er gott að þeir hafa komið sér saman um staðal sem virkar sem best fyrir alla. Það er í eðli sínu jákvætt. En hins vegar er á Íslandi almennt talað um að íslenskur markaður þurfi að aðlaga sig Evrópumarkaði, það sé einhvern veginn slæmt, það sé árás gagnvart sjálfstæði sem er auðvitað bara bull, virðulegi forseti, með fullri virðingu. Sú umræða að Evrópumarkaður ætti að aðlaga sig okkar aðstæðum og okkar kerfum vegna þess að það sé eitthvað sjálfstæðismál er algjörlega á villigötum, virðulegi forseti. Þetta er ekkert spurning um þjóðarstolt. Þetta er spurning um það hvort það er skynsamlegt eða ekki að vera með samhæfðar reglur við aðra markaði þannig að þær virki sem best saman.

Þá velti ég fyrir mér þegar við fáum svona glæsilegar tillögur inn á þing, hvers vegna erum við ekki þakklát fyrir það. Eða erum við það kannski? Er það kannski þess vegna sem hæstv. ríkisstjórn leggur svo mikið kapp á það að koma svona málum í gegn? Þetta eru almennt góð mál og vel unnin af miklu fleira fólki en við höfum efni á að borga og í miklu stærra samhengi en við höfum nokkurt tækifæri til að hugsa um.

Ég brydda upp á þessu bara til umhugsunar, enda pælari eins og hv. þingmaður nefndi áðan. Þetta er ekki endilega stuðningsyfirlýsingu við aðildarumsókn að Evrópusambandinu, heldur bara það (Gripið fram í.) að mér finnst hollt að hugsa um hlutina á aðeins öðruvísi hátt en birtist kannski í hinni almennu umræðu. Það er eingöngu vegna þess að mér finnst þetta svo fínt mál að mér fannst þess virði að halda hér stuttan pistil um það hvernig er hægt að hugsa um þetta, ekki sem spurningu um Ísland versus EES. Ég held ekki að þetta góða mál kæmi frá íslenskum stjórnvöldum nema ef væri fyrir EES. Ég held ekki. Ég held að þorrinn af EES-málunum yrðu ekki til á Íslandi ef við værum ekki í EES. Ég held ekki að íslensk stjórnvöld mundu hafa það frumkvæði. Ástæðan er tvíþætt. Ég held í fyrsta lagi að áhugasvið íslenskra stjórnvalda sé einfaldlega ekki á sama stað og það er eðlilegt að vissu leyti, en í öðru lagi held ég að íslensk stjórnvöld hafi ekki burði til þess. Ég held við séum einfaldlega ekki nógu mörg, við höfum einfaldlega ekki nógu mikið af fólki sem er búið að læra nógu mikið um hinn ógnarstóra 500 milljóna manna Evrópumarkað.

Mig langaði að troða þessum pælingum inn í umræðuna til umhugsunar vegna þess að þegar við fáum þessi góðu mál þá ættum við kannski að minna okkur á að við fáum svona mál þegar umræðan snýst við og við förum að bölva því í sand og ösku að hafa ekkert að segja um hlutina innan ESB.

Að því sögðu þá er þess virði að hlýða á það þegar menn segja að það er ákveðin togstreita til staðar sem verður að sögn meiri og meiri sem er sú að EES krefur okkur um breytingar sem við höfum ekkert um að segja. Fyrr eða síðar fer það að verða alvarlegt vandamál gagnvart stjórnarskrá lýðveldisins og fyrr eða síðar getum við ekki stjórnað framgangi mála. Á einhverjum tímapunkti er það orðið spurning um sjálfstæði. Ég sé það ekki enn þá gerast ef ég segi alveg eins og er vegna þess að þetta er næstum því allt eitthvað sem við viljum taka upp eftir því sem ég best veit. En ég held ekki að sú staðreynd að við fáum tiltölulega vinsæl og góð mál frá EES eigi eftir að slökkva í Evrópusambandsumræðunni á næstunni. Í andrúmsloftinu núna er þessi hugmynd um að Evrópusambandið sé búið að vera og það þýði ekkert að pæla í því lengur. Ég held ekki að það sé tilfellið. Mér þykir mál eins og þessi og sú staðreynd að þetta er gott mál bera því vitni.