145. löggjafarþing — 151. fundur,  13. sept. 2016.

ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 97/2016 um breytingu á XVI. viðauka við EES-samninginn.

864. mál
[19:30]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég hafði gaman af ræðu hv. þm. Helga Hrafns Gunnarssonar. Eftir allar hans pælingar í þessum málum braust hér fram eldheitur Evrópusinni og það gladdi mitt gamla hjarta. Hv. þingmaður hefur greinilega komist að þeirri niðurstöðu að einn af kostunum við það að vera aðili að Evrópusambandinu er sá að þar eru mörg og miklu fleiri augu á stjórnkerfinu en við höfum. Það er bara fullkomlega eðlilegt. Að vísu færri sem vinna innan höfuðstöðva á vegum Evrópusambandsins en er að finna t.d. í landbúnaðarráðuneytinu franska. Það eru samt 18 þús. manns sem huga að mörgu, margir góðir sérfræðingar. Það er hárrétt hjá honum að þeir leggja sig sérstaklega eftir ýmsum misfellum í markaðnum og koma með frumvarp eins og þetta sem er fullt af alls konar brilljant hlutum sem ólíklegt er að íslenska stjórnkerfið hefði tóm og tíma til að sinna og varða kannski ekki miklu en skiptir samt máli fyrir lítil fyrirtæki sem eru að hasla sér völl, bæði hér á heimamarkaði og erlendis.

Hv. þingmaður drap nokkrum orðum að þeirri hugmynd minni um það sem ég hef varpað hér áður fram, hvernig við getum haft áhrif á gerðir sem Evrópuþingið hefur lokaumsögn um eftir ágreining innan framkvæmdastjórnar þess. Það er alveg rétt hjá honum að þar er ekki um formlegt ferli að ræða. En það eru engir möguleikar fyrir Ísland til að hafa formlegt ferli í gangi til að hafa áhrif á gerðirnar. Það er eðli samningsins. Hann er með þessum hætti. Hver ríkisstjórn sem hefur ámálgað breytingar á EES-samningnum hefur gengið bónleið til búðar.

Ég rifja það upp fyrir þessum minnuga pælara sem hæstv. núverandi landbúnaðarráðherra og sjávarútvegsráðherra sagði í upphafi tíðar sinnar sem utanríkisráðherra að fyrsta mál hans væri að ná í gegn breytingum á EES-samningnum. Hann reyndi. Að sjálfsögðu (Forseti hringir.) fékk hann sama svar og Norðmenn og aðrir sem eru á sama báti og við, það er ekki til umræðu.