145. löggjafarþing — 151. fundur,  13. sept. 2016.

fullgilding samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

865. mál
[19:50]
Horfa

utanríkisráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Eins og ég sagði áðan tel ég afskaplega mikilvægt að við klárum þetta mál. Ég treysti á það vegna mikilvægi þess. Ég trúi því ekki að við ætlum að fara að rífast um málefni þess, að fullgilda samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Það kemur mér svolítið á óvart reyndar að ég skuli eiga í þessum orðaskiptum hér vegna þess að það er búið að bíða heillengi eftir þessu máli.

Ég nefndi það áðan að árið 2007 var skrifað undir samninginn. Nú þegar (Gripið fram í.) hafa 166 ríki fullgilt samninginn. Mér finnst það því ofsalega sorglegt þegar við erum búin að undirbúa þetta mál svona vel, erum að fara yfir það og allt er til reiðu, við erum búin að eiga í miklu samráði við alla hagsmunaaðila og málið er tilbúið, ef við ætlum að gera það (Gripið fram í.) að einhverju pólitísku máli hér. Ég verð bara að segja það alveg eins og er. (KLM: Þið eruð að gera það pólitískt.)