fullgilding samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Hæstv. forseti. Frá því að ég tók sæti á Alþingi fyrir tveimur árum hef ég þó nokkuð oft í hinum ýmsu umræðum kallað eftir því að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði fullgiltur af Íslands hálfu enda er hér um alveg gríðarlega mikilvægan sáttmála að ræða, eins og kemur fram í athugasemd með þingsályktunartillögunni, með leyfi hæstv. forseta:
„Ástæða fyrir tilurð alþjóðlegs mannréttindasáttmála um réttindi fatlaðs fólks er sú staðreynd að þrátt fyrir að fatlað fólk eigi sömu mannréttindi og aðrir þá er því oft ekki gert kleift að nýta sér réttindi sín.“
Það er auðvitað megininntak samningsins.
Ég var meðflutningsmaður þingsályktunartillögu hv. þm. Kristjáns Möllers sem átti orðastað hér áðan við hæstv. ráðherra. Ég verð að viðurkenna að þegar ég sá að þetta mál væri nú að koma fram frá hæstv. ráðherra kviknaði sú spurning í mínum huga: Af hverju núna? Af hverju kemur þetta mál fram núna frá hæstv. ráðherra? Hvað hefur að mati hæstv. ráðherra breyst frá því að við kölluðum eftir því að þessi samningur yrði fullgiltur? Það er reifað ágætlega í athugasemdum með málinu hvaða lögum á eftir að breyta, sem hæstv. ríkisstjórn og hæstv. innanríkisráðherra hafa m.a. notað sem rök fyrir því (Forseti hringir.) að ekki hafi verið hægt að klára málið. Það er ekki enn þá búið að klára þau mál. Mér þætti vænt um að fá aðeins skýrari svör frá hæstv. ráðherra um hvað hefur breyst. (Forseti hringir.) Málið er auðvitað enn þá jafn gott.