fullgilding samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegi forseti. Ég þakka spurninguna. Mér finnst afskaplega mikilvægt að við klárum þetta mál, ég skal bara viðurkenna það. Jafnvel þó að ekki sé búið að fara í allar þær lagabreytingar sem margir töldu að þyrfti að fara í tel ég að það muni frekar hreyfa við málunum ef við náum að fullgilda samninginn. Það er mín persónulega skoðun. Þegar málið kom til mín í ráðuneytið fannst mér afskaplega mikilvægt að klára það og gera það með þeim hætti eins og við erum að gera. Það kann að vera að menn séu að deila um þingsályktunartillöguna sem nefnd hefur verið fyrr í kvöld. En ef ég á að segja ykkur alveg eins og er þá finnst mér það bara ekki skipta öllu máli. Það sem skiptir mestu máli er að við náum að klára málið og jafnvel þó að ekki sé búið að fara í allar þær lagabreytingar sem menn hafa nefnt að væru nauðsynlegar tel ég að þegar við fullgildum samninginn muni það ýta enn frekar á þær nauðsynlegu lagabreytingar sem þörf er á. Nefni ég þar til að mynda frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk og breytingar á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Við gerum ráð fyrir því að það verði lagt fyrir á þinginu 2016–2017. Frumvarp til laga við bann við mismunun. Þegar við fullgildum samninginn mun það ýta frekar á að samþykka þessi mál.