145. löggjafarþing — 151. fundur,  13. sept. 2016.

fullgilding samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

865. mál
[20:40]
Horfa

Kristján L. Möller (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin og þann skilning sem hún hefur talað um. Þetta er hennar hjartans mál, segir hún. Það er það líka hjá mér og hefur verið alla tíð þó að ég hafi kannski ekki á sama hátt haft mig í frammi hér í þinginu við flutning á svona tillögum, ég hef þó tekið þátt í umræðum og átti eitt sinn sæti í velferðarnefnd.

Ég er ekki að leggja það til, virðulegi forseti, að málið gangi til utanríkismálanefndar. Ég nefni þetta hins vegar til lausnar á málinu og til að fá hraðari framgang. Ég ætla þá bara að eftirláta hæstv. utanríkisráðherra, í lokaræðu sinni, að hugleiða þann möguleika sem ég hef hér nefnt. Ég vil jafnframt taka það fram, virðulegi forseti, að miðað við það hve fáir dagar eru eftir þá er mjög mikilvægt að það fylgi frá þessum sal við fyrri umr. að utanríkismálanefnd, ef þetta fer þangað, nýti sér gögn og annað sem liggur fyrir í velferðarnefnd um umsögn við þá þingsályktunartillögu sem ég og aðrir þingmenn höfum flutt. Þannig er ég sannfærður um að við munum klára þetta mál á þeim níu dögum sem eftir eru. Það yrði þá bragur að því að Alþingi klári þetta mál.